skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Kjaraviðræður nálgast þáttaskil

  • 18. ágúst, 2015

Næsti fundur Samninganefnda SSF og SA er boðaður á morgun, miðvikudaginn 19. ágúst, klukkan 10:30. Nú liggur fyrir Gerðardómur um kjarasamninga BHM og hjúkrunarfræðinga. Dómurinn fyrir BHM nær aðeins til rúmlega tveggja ára, en hjúkrunarfræðinga til tæplega fjögurra ára. Upphafshækkun í báðum samningunum er rúmlega sjö prósent, óháð því hvort laun eru há eða lág. Engin ákvæði eru um „baksýnisspegla“ eins og eru í kjarasamningum ASÍ-félaga við SA, enda eru…

Lesa meira

Kjaraviðræður aftur í gang

  • 10. ágúst, 2015

Eins og fram kom í frétt frá SSF í byrjun júlí hafa kjaraviðræður gengið hægt. Ríkissáttasemjari lokaði húsi sínu fyrir kjaraviðræðum seinnipartinn í júlí og fyrstu viku ágúst (nema ÍSAL).  Samninganefndir SSF og SA (fjármálafyrirtækjanna) voru einnig meira eða minna í orlofi þessar sömu vikur. Þrátt fyrir orlof hafa oddvitar samninganefnda átt samtöl um kjarasamningana, en afstaða aðila hefur ekkert breyst (sjá frétt 3.7.2015).  Samninganefnd SSF bíður enn eftir útreikningum…

Lesa meira

Lokað vegna sumarleyfa 20-31. júlí

  • 6. júlí, 2015

Kæru félagsmenn Vegna sumarleyfa starfsmanna verður skrifstofa SSF lokuð dagana 20. júlí til og með 31. júlí.  Þrátt fyrir það verður öllum tölvupóstum svarað eins fljótt og unnt er. Síðasta afgreiðsla í Styrktarsjóði SSF fyrir sumarleyfi verður þann 15. júlí og fyrsta afgreiðsla eftir sumarleyfi verður 14. ágúst. Starfsfólk SSF

Lesa meira

Kjaraviðræður ganga hægt

  • 3. júlí, 2015

Samninganefndir SSF og SA funduðu í húsakynnum Ríkissáttasemjara fimmtudaginn 25. júní.  Á þeim fundi kom skýrt í ljós hjá báðum samningsaðilum að kjarasamningarnir sem gerðir voru í maí/júní með ,,baksýnisspeglum“, ,,launaþróunartryggingu“ og mismunandi prósentuhækkunum launa eftir því hvort félagsmenn taka laun samkvæmt launatöflu SSF eða ekki ganga ekki.  Sá munur getur numið allt að 5% í launahækkunum á samningstímanum.  Undir slíka mismunun á kjörum félagsmanna með sömu heildarlaun, í töflu…

Lesa meira

Kjaraviðræður SSF og SA

  • 24. júní, 2015

Eins og alþjóð veit voru kjarasamningar um 50 þúsund félagsmanna innan raða ASÍ samþykktir með miklum meirihluta í arfaslakri kosningaþáttöku (innan við 20% tóku þátt). Flest félög iðnaðarmanna hafa einnig skrifað undir sambærilega kjarasamninga og sett þá í atkvæðagreiðslu. Sama gildir um hjúkrunarfræðinga, og BHM á í viðræðum áður en Gerðardómur tekur völdin af þeim þann 1. júlí n.k. Samninganefndir SSF og SA munu funda í húsakynnum Ríkissáttasemjara á morgun,…

Lesa meira

Arion banki hlýtur Jafnlaunavottun VR

  • 20. júní, 2015

Arion banki hefur fengið Jafnlaunavottun VR og er þar með fyrstur íslenskra banka til að hljóta þessa vottun. Bankinn hefur þar með fengið staðfestingu á því að búið sé að kerfisbinda launaákvarðanir og að hann sé með jafnlaunakerfi samkvæmt kröfum ÍST 85:2012. Kerfið mun tryggja að starfsfólki sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf sé ekki mismunað í launum. „Það er afskaplega ánægjulegt en ekki síður mikilvægt þegar stór banki á…

Lesa meira

Grein: Er njósnaforrit í símanum mínum?

  • 20. júní, 2015

Ef vinnupósthólfið þitt er sett upp í símanum þínum þá eru talsverðar líkur á því að það sé einnig njósnaforrit í símanum.  Tilgangur þessarar tegundar njósnaforrita er hinsvegar ekki að njósna um starfsmanninn heldur að verja þær viðkvæmu upplýsingar sem fyrirtækjatölvupóstur er.  Þessi forrit gegna því hlutverki nokkurskonar umsjónarkerfis sem gefur kerfisstjórum fyrirtækisins möguleika á að laga villur sem geta komið upp, tryggja gagnaöryggi og tryggja viðbrögð við því ef…

Lesa meira

Kjarasamningsviðræður SSF og SA tefjast enn

  • 8. júní, 2015

Samninganefnd SSF fundaði með samninganefnd SA (bankanna) föstudaginn 5. júní. SA lagði þar fram sama tilboð og almennt liggur nú fyrir eftir undirritun kjarasamninga milli SA og ASÍ félaganna SGS, LÍV (VR) og Flóa. Útfærsla launahækkana í þeim samningum er sérkennileg þar sem persónubundnar hækkanir á síðasta ári (2014) og fyrir hluta samningstímans eru í raun teknar uppí umsamdar launahækkanir á árunum 2015-2016. Þetta kalla SA og ASÍ félögin „launaþróunartryggingu“.…

Lesa meira

Íslandsbanki hlýtur Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC

  • 4. júní, 2015

Íslandsbanki hlaut í dag Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC.  Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC  er veitt fyrirtækjum þar sem launamunur kynja er innan við 3,5%. Í úttektinni er gerður greinarmunur á grunnlaunum, föstum launum og heildarlaunum eftir kyni og að teknu tilliti til lífaldurs, starfsaldurs, menntunar, starfaflokks, stöðu innan fyrirtækis og vinnustunda.   Í tilkynningu Íslandsbanka segir að bankinn "hefur lagt mikla á fjölbreytni og jöfn tækifæri innan bankans og hefur með markvissum hætti…

Lesa meira

Kjarasamningar SSF

  • 1. júní, 2015

Enn er enginn árangur af kjaraviðræðum SSF og SA.  Nýr samningur Flóa, SGS, LÍV (ASÍ) hentar þessum stéttarfélögum eflaust vel, en þar er aðal áherslan lögð á að hækka lágmarkslaun í kr. 300.000 á næstu 3-4 árum.  Sem betur fer eru afar fáir félagsmenn SSF með laun undir kr. 300.000 í dag, enda kröfur til menntunar og reynslu starfsmanna fjármálafyrirtækja mun meiri en gerðar eru til félagsmanna Flóa, SGS og…

Lesa meira
Search