skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Íslandsbanki hlýtur Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC

Íslandsbanki hlýtur Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC

Íslandsbanki hlaut í dag Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC.  Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC  er veitt fyrirtækjum þar sem launamunur kynja er innan við 3,5%. Í úttektinni er gerður greinarmunur á grunnlaunum, föstum launum og heildarlaunum eftir kyni og að teknu tilliti til lífaldurs, starfsaldurs, menntunar, starfaflokks, stöðu innan fyrirtækis og vinnustunda.  

Í tilkynningu Íslandsbanka segir að bankinn “hefur lagt mikla á fjölbreytni og jöfn tækifæri innan bankans og hefur með markvissum hætti aukið vægi kvenna í yfirstjórn bankans.  Ríflega helmingur stjórnenda bankans í dag eru konur.  Í níu manna framkvæmdastjórn bankans eru fjórar konur og í stjórn bankans eru konur  í meirihluta. Íslandsbanki hefur lagt sérstaka áhersla á leiðtogaþjálfun, lærimeistarakerfi og markþjálfun fyrir konur í bankanum með það að markmiði að styðja við starfsþróun kvenna innan bankans.” 

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir að „Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð okkar hjá Íslandsbanka að auka fjölbreytni og jafnrétti í stjórnun og starfsemi bankans. Við höfum unnið að þessu með  markvissum aðgerðum á undanförnum misserum og ætlum okkur að halda áfram á þessari braut. 

Ég þekki það af eigin reynslu að fyrirtæki sem leggja áherslu á fjölbreytni og jöfn tækifæri gengur betur að byggja upp öfluga liðsheild, eru með ánægðara starfsfólk og betri fyrirtækjabrag en þau fyrirtæki sem ekki eru komin þangað.  Ég hvet því stjórnendur til þess að gefa þessum málaflokki gaum í daglegum störfum sínum.“

Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja óskar Íslandsbanka til hamingju með glæsilegan árangur og Gullmerkið.

Search