skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Launagreiðendur

Launagreiðendur

Fyrir launagreiðendur
Aðild að SSF hefur í för með sér að fyrirtækið samþykkir að greiða laun og önnur kjör ekki lakari en samkvæmt kjarasamningum SSF. Sjá einnig kjarasamning undir kjaramál á heimasíðunni.

Félagsgjaldanúmer SSF er 542.
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja, kt. 550269-7679.
Reikningsupplýsingar: 0133-26-007679

Skilagreinar:
Skilagreinum skal skila rafrænt.  Hægt er að senda skilagreinar með rafrænni sendingu á XML-formi eða með SAL-formi á netfangið [email protected] Greiða má í einni upphæð en skilagreinar með fullnaðarupplýsingum (nákvæmri sundurliðun gjalda) um viðkomandi launþega þurfa jafnframt að berast mánaðarlega.

Félagsgjald:
Fyrirtækið dregur mánaðarlega af launum félagsmanna 0,7% af mánaðarlaunum og greiðir til SSF sem félagsgjald. Hámarksfjárhæð félagsgjalds er frá 1.1 2020 kr. 4.600. Félagsgjald til SSF reiknast af öllum mánaðarlaunum.

Styrktarsjóður SSF:
Fjármálafyrirtæki greiða 0,7% af mánaðarlaunum starfsmanns til Styrktarsjóðs, ekkert hámark. Fram að þessu hefur verið miðað við tiltekið hámark (efsti launaflokkur) en frá og með 1. júlí 2019 (vegna júlí launa) greiðir fjármálafyrirtæki framlag til Styrktarsjóðs SSF af öllum mánaðarlaunum.

Menntunarsjóður SSF:
Fjármálafyrirtæki greiða 0,21% af mánaðarlaunum starfsmanns til Menntunarsjóðs, ekkert hámark. Fram að þessu hefur verið miðað við tiltekið hámark (efsti launaflokkur) en frá og með 1. júlí 2019 (vegna júlí launa) greiðir fjármálafyrirtæki framlag til Menntunarsjóðs SSF af öllum mánaðarlaunum, ath. breytt prósenta (var 0,3%).

Greiðslur í lífeyrissjóði:
Auk umsaminnar greiðslu 6% í sameignarlífeyrissjóð greiðir fyrirtækið fyrstu þrjú starfsárin sérstakt 5,5% (var 2% til 31.12.2019) framlag ofan á laun starfsmanns í séreignarlífeyrissjóð sem starfsmaðurinn sjálfur ákveður (sjá grein 12.6.2. í kjarasamningi). Eftir þriggja ára starf skv. kjarasamningum SSF hækkar þessi greiðsla úr 5,5% í 7%.

Orlofsheimilasjóður:
Gjald er 0% Fyrirkomulag orlofsheimila fyrir félagsmenn SSF er með þeim hætti að þau mál eru leyst af starfsmannafélagi innan hvers fyrirtækis og þar með er ekki greitt í sameiginlegan orlofssjóð hjá stéttarfélaginu.

Endurhæfingarsjóður:
Gjald er 0,10% sem greiðast beint til Virk starfsendurhæfingarsjóðs , en flestir lífeyrissjóðir innheimta þetta gjald fyrir sjóðinn.

 

 

Search