skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]
Atkvæðagreiðsla hafin

Atkvæðagreiðsla hafin

  • 1. júní, 2019

Hafin er atkvæðagreiðsla um kjarasamning Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtaka atvinnulífsins (SA) sem gildir frá 1.4.2019 til 1.11.2022. Hægt er að kynna sér efni kjarasamningsins hér. Til að greiða atkvæði þarf að skrá sig inn hér.  Hvetjum alla félagsmenn til að kjósa. Atkvæðagreiðslu lýkur kl. 12, föstudaginn 7. júní

Lesa meira
Kjarasamningur undirritaður

Kjarasamningur undirritaður

  • 31. maí, 2019

Í dag undirrituðu Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtök atvinnulífsins (SA) nýjan kjarasamning sem gildir frá 1.4.2019 til 1.11.2022. Megin áherslur SSF fyrir kjarasamninga 2019 voru lagðar á þingi SSF í mars síðastliðnum. Fulltrúar á þinginu samþykktu að leggja áherslu á hækkun lægri launa, styttri vinnuskyldu meðal annars með mögulegri frítöku að vetri, ákvæði um fastlaunasamninga, stöðugleika og bætta velferð. Mörg önnur atriði eru í þessum kjarasamningi, meðal annars hærri…

Lesa meira
Fundargerð SSF – þingsins

Fundargerð SSF – þingsins

  • 31. maí, 2019

47. þing SSF fór fram á Selfossi dagana 21. og 22. mars. Fundargerð þingsins  hefur verið birt í heild sinni á vef Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.. Þar gefst félagsmönnum kostur á að kynna sér samþykktir þingfulltrúa SSF í heild sinni, stjórnarkjör, ársreikning, fjárhagsáætlun og fleira. Fundargerðina má nálgast her.

Lesa meira
Deilt um fækkun vinnustunda

Deilt um fækkun vinnustunda

  • 21. maí, 2019

Eins og fram kom í frétt hér á heimasíðu SSF fimmtudaginn 9. maí þá hafa samninganefndir SSF og SA(SFF) fundað reglulega undanfarnar vikur. Síðasti fundur var mánudaginn 20. maí og næsti fundur verður eftir hádegi fimmtudaginn 23. maí. Málefnin eru þau sömu, hækkun launa innan sem utan launatöflu, lágmarkslaun fyrir hvert starfsheiti (sbr. grein 1.5 í kjarasamningi), umgjörð um fastlaunasamninga, greiðslur fyrirtækjanna í Styrktarsjóð, tryggingar og fleira. Enn er deilt…

Lesa meira
Orlofsuppbót 2019

Orlofsuppbót 2019

  • 10. maí, 2019

Félagsmenn SSF fá orlofsuppbót greidda þann 1. júní 2019. Orlofsuppbótin er kr. 48.000,- fyrir fullt starf á nýliðnu orlofsári frá 1. maí 2018 til 30. apríl 2019. Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist þann 1. júní miðað við starfshlutall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum…

Lesa meira
Kjarasamningsviðræður SSF

Kjarasamningsviðræður SSF

  • 9. maí, 2019

Samninganefndir SSF og SA (SFF) hafa fundað reglulega undanfarnar vikur um kjarasamninga félagsmanna SSF. Síðasti fundur samningsaðila var í gær, miðvikudaginn 8. maí, í húsakynnum SSF að Nethyl. Viðræðurnar byggja á svipuðum grunni og félög verkamanna, verslunarmanna og iðnaðarmanna hafa samið við Samtök atvinnulífsins. Samninganefnd SSF vill að sjálfsögðu fara eigin leiðir varðandi launahækkanir félagsmanna (innan og utan launatöflu) og framkvæmd á styttingu vinnutíma á ársgrundvelli. Að auki eru nokkur…

Lesa meira

Mínar síður lokaðar frá 2. maí til 9. maí

  • 30. apríl, 2019

Mínar síður SSF verða lokaðar frá kl. 12 fimmtudag 2. maí til og með fimmtudag 9. maí vegna vinnu við tölvukerfi. Ekki verður hægt að senda inn umsóknir í sjóði SSF á meðan Mínar síður eru lokaðar. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Skrifstofa SSF

Lesa meira
SSF mótið í keilu

SSF mótið í keilu

  • 25. apríl, 2019

SSF - mótið í keilu verður haldið í Egilshöllinni dagana 6. og 8. maí kl. 18:00.  Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf. Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki. Leikið verður tvö kvöld. Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið…

Lesa meira
Menntunarsjóður SSF – Átaksverkefni

Menntunarsjóður SSF – Átaksverkefni

  • 23. apríl, 2019

47. þing SSF, sem haldið var í lok mars, samþykkti að ráðast í átaksverkefni í menntunarmálum. Átaksverkefnið sem er að lágmarki til þriggja ára tekur gildi frá og með námi sem stundað er á sumarönn 2019 en þá hækkar hlutfall endurgreiddra námsgjalda úr 50% í 80% og hámarkfjárhæð sem greidd er á önn hækkar úr 150.000 kr. í 175.000 kr. Styrkur fyrir sumarstarfsmenn hækkar í 30.000 kr. frá og með…

Lesa meira
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum

  • 20. apríl, 2019

Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja eru á Facebook og Instagram. Félagsmenn geta fylgt samtökunum á Facebook með því að smella hér eða slá inn SSF í leitarstrenginn.   Á Instagram má finna okkur með því að slá inn #samtokstarfsmannafjarmala eða með því að smella hér.    

Lesa meira
Search