skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

SSF mótið í keilu

SSF mótið í keilu

SSF – mótið í keilu verður haldið í Egilshöllinni dagana 6. og 8. maí kl. 18:00.  Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf. Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.

Leikið verður tvö kvöld. Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt verðlaunaafhendingu og veitingum.

Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang  [email protected]  fyrir kl. 12:00 föstudaginn 3. maí. Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan ( helst í röð leikmanna á braut )

NET-fang : [email protected]

NET-bréf subject : “SSF_keila_2019 – heiti liðs”.

Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin

Search