skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

KOSNINGU LÝKUR KL. 10 Á MORGUN FÖSTUDAG!

KOSNINGU LÝKUR KL. 10 Á MORGUN FÖSTUDAG!

Nú styttist í lok kosningar um kjarasamning SSF og SA.  Nú í morgun, fimmtudag, var kosningaþátttaka komin í 64,1%.  Kosningu lýkur kl. 10.00 á morgun föstudaginn 17. maí. 

SSF hvetur alla til að kjósa um kjarasamninginn með því að fara inn á neðangreinda slóð:

ssf.is/kosning

Við viljum ítreka að þó félagsmaður fái EKKI sms þá getur hann samt sem áður kosið með því að fara inn á ofangreindan link, ssf.is/kosning.

Framkvæmd kosningarinnar er í höndum óháðs aðila, AP Media.

Þau ykkar sem eigið eftir að kynna ykkur innihald samningsins getið lesið hann hér sem og kynninguna sem farið var yfir á Teams fundum í síðustu viku:

Kjarasamningur SSF; 

Kynning-Teams

Ef einhver getur ekki kosið fær viðkomandi upp form til að senda inn kæru sem verður skoðuð og tekin afstaða til.  Þegar athugun hefur farið fram þá fær kærandi sms frá framkvæmdaaðila kosningarinnar.

Allir þeir sem greiða félagsgjöld til SSF hafa rétt til að kjósa hvort sem þeir eru í fullu starfi eða hlutastarfi, lausráðnir eða fastráðnir. 

Search