skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Trúnaðarmaður – Þinn fulltrúi á þínum vinnustað

Trúnaðarmaður – Þinn fulltrúi á þínum vinnustað

Trúnaðarmaðurinn er fulltrúi stéttarfélagsins á vinnustaðnum, kjörinn af samstarfmönnum og þar af leiðandi umboðsmaður þeirra gagnvart atvinnurekenda og stéttarfélagi. Að því leyti er trúnaðarmaðurinn bæði í stöðu varðmanns gagnvart réttindum samstarfsmanna sinna og jafnframt upplýsingagjafi (tengiliður) stéttarfélagsins.
Meginstarf trúnaðarmannsins er að gæta þess að kjarasamningar, lög og réttindi starfsmanna séu virt í hvívetna.

Innan trúnaðarmannahóps SSF starfar þéttur og samheldinn hópur yfir hundrað einstaklinga með áratuga reynslu.

Lesa má ítarlegri upplýsingar um starf trúnaðarmannsins, og kosningar trúnaðarmanna á vef ssf.is undir liðnum „Trúnaðarmenn“ og eins í Trúnaðarmannahandbók SSF.

Search