skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Nýtt útibú Íslandsbanka í Norðurturni

Nýtt útibú Íslandsbanka í Norðurturni

20161212-_d4m8687

Útibúið í Norðurturni verður eitt af stærstu útibúum Íslandsbanka og er staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, nálægt verslunarkjarna, einstaklings- og atvinnubyggð. Næg bílastæði eru við útibúið og aðgengi gott. Lilja Pálsdóttir er útibússtjóri hins nýja útibús í Norðurturni, Kári Tryggvason er viðskiptastjóri einstaklinga og Karl Sólnes Jónsson er viðskiptastjóri fyrirtækja.

Nýtt og sameinað útibú verður öflug fjármálamiðstöð sem mun bjóða upp á vandaða fjármálaráðgjöf fyrir viðskiptavini bankans. Öll hönnun og virkni útibúsins tekur mið af sveigjanleika í skipulagi, nýrri tækni, öflugri ráðgjöf og þjónustuupplifun viðskiptavina.

Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs:

Við erum afar stolt af útibúi okkar í Norðurturni þar sem við mætum þörfum viðskiptavina Íslandsbanka. Hátt þjónustustig verður í aðalhlutverki með það að markmiði að mæta kalli og kröfum viðskiptavina okkar. Um leið og stafrænni vegferð fleygir áfram þá hafa kröfur um persónulega og góða þjónustu ekkert minnkað en breyst. Í Norðurturni verður boðið upp á sérfræðiþekkingu hjá vottuðum fjármálaráðgjöfum útibúsins samhliða því að auka möguleika á allri sjálfsafgreiðslu. Þannig verða sérstakir hraðþjónusturáðgjafar til þjónustu reiðubúnir til að aðstoða viðskiptavini svo hægt sé að gera heimsóknina í útibúið sem þægilegasta og mikið verður lagt upp úr ánægjulegri upplifun viðskiptavina.

20161212-_d4m8539  20161212-_d4m8490

Frétt og myndir: Íslandsbanki

 

Search