skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

KEILUMÓT 18DA OG 21STA OKTÓBER!

KEILUMÓT 18DA OG 21STA OKTÓBER!

SSF mótið í keilu 2021

 

Eftir smá hlé þá höldum við SSF mót í keilu, mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.

Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.

Mótið verður haldið í Egilshöllinni dagana 18. og 21. október kl. 18:00.

Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt veitingum.

Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang  [email protected]  fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. október.

Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan ( helst í röð leikmanna á braut )

NET-fang : [email protected]

NET-bréf subject : “SSF_keila_2021 – heiti liðs”.

Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin.

 

 

Search