skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

KAPPHLAUP UM SNJALLSÍMAGREIÐSLUR

KAPPHLAUP UM SNJALLSÍMAGREIÐSLUR

Á byrjunarreit: Snjallsímagreiðslur munu tröllríða öllu en ekki fyrr en allir geta nýtt sér tæknina, segir Tom Scharning í Nets.

Á byrjunarreit: Snjallsímagreiðslur munu tröllríða öllu en ekki fyrr en allir geta nýtt sér tæknina, segir Tom Scharning í Nets.

„Aðeins eitt af 1000 fyrirtækjum sem bjóða uppá greiðslulausnir fyrir snjalltæki mun ná árangri. Snjallsímagreiðslur verða ekki verulegur hluti greiðslna fyrr en komið verður á sameiginlegu kerfi fyrir snjallgreiðslur óháð því hvaða banki á í hlut, hvaða snjalltæki er notast við og á hvaða tæknilegu lausn er byggt“, segir Tom Scharning, framkvæmdastjóri upplýsingatækniþjónustudeildar hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Nets í Noregi.

Kapphlaupið um að hanna snjöllustu og notendavænustu snjallsímagreiðslulausnina er í fullum gangi. Það hefur einkennt þróunina hingað til að erfitt er að öðlast yfirsýn yfir markaðinn. Mörg ólík fyrirtæki vinna að þróun ólíkra lausna sem byggja á ólíkri tækni. Virðiskeðjan er flókin og langt frá því að vera fullþróuð. Scharning fylgist náið með þróuninni, ásamt samstarfsfólki sínu hjá Nets. Það er ómögulegt að spá fyrir um hverjir muni standa eftir og hverjir hverfa á braut. Lykillinn að velgengni er að þróa afburða notendavænar lausnir sem eru jafnframt stöðugar og öruggar í rekstri.

LÍTILL GREIÐSLUVILJI

„Nets hefur í gegnum tíðina þróað vönduð greiðslumiðlunarkerfi í nánu samstarfi við banka á Norðurlöndunum. Aðal verkefni okkar hefur verið að tryggja stöðugan og öruggan rekstur þessara kerfa. Nú höfum við þróað kerfi fyrir snjallsímagreiðslur sem allir bankar geta tekið í notkun og mun verða mikilvægur grunnur fyrir frekari þróun snjallsímagreiðslna hér í landi“, segir Scharning.

En þrátt fyrir að viðskiptavinirnir geti glaðst yfir sífellt fleiri nýjum snjallsímagreiðslulausnum eru fáir tilbúnir að greiða fyrir að standa straum af kostnaði við þessar nýjungar.

„Þróunarkostnaðurinn er hærri en við þróun hefðbundinna greiðslumiðlunarkerfa. Hingað til hefur greiðsluvilji verið fremur lítill og það mun hægja á útbreiðslu þessara lausna“, segir Scharning og bætir við að, „þegar Danske Bank byrjaði að bjóða uppá MobilPay, fyrir tveimur árum síðan, var ætlunin að viðskiptavinirnir myndu greiða fyrir appið. Viðskiptvinirnir voru ekki tilbúnir til þess og því fallið frá því að rukka fyrir appið.“

APPLE PAY ER VÆNTANLEGT

Stór alþjóðleg fyrirtæki eins og Apple, Google, Facebook og Amazon hafa öll þróað eða vinna nú að þróun snjallsímagreiðslulausna. Þessar lausnir munu skapa raunverulega samkeppni um þær greiðslur sem hingað til hefur verið miðlað í gegnum hefðbundna banka. En Nets óttast ekki að þessir aðilar muni hafa betur í samkeppni við hið sameiginlega norræna greiðslukerfi, allavega ekki í fyrstu.

-„Hér á Norðurlöndunum höfum við verið leiðandi að því leyti að við bjóðum uppá sameiginlegt greiðslukerfi sem er mun þróaðra en fyrirfinnst í flestum öðrum Evrópulöndum eða í Bandaríkjunum. Við höfum átt langt og gott samstarf við fjármálafyrirtækin og höfum þannig komið á fót hagkvæmu kerfi sem allir viðskiptavinir okkar geta nýtt sér. Það veitir mikið samkeppnisforskot á hörðum markaði, en við fylgjumst vel með þróuninni og aðlögum okkur að henni“, staðhæfir Tom Scharning.

Hvað gerist þegar Apple Pay býðst á Norðurlöndnum?

snjallsgr„Apple er sterkt vörumerki, en til þess að ná árangri á Norðurlöndunum þarf Apple að notast við allt aðra viðskiptaáætlun en í Bandaríkjunum. Til að ná árangri á Norðurlöndunum þarf Apple líka að bjóða þriðju aðilum aðgengi að sínum lausnum. Færslugjöld fyrir greiðslumiðlun eru mun hærri í Bandaríkjunum en á Norðurlöndunum og því er ekki um jafn ábatasaman markað að ræða. Það áhugaverða við Apple Pay er að það byggir á svokallaðri NFC-tækni en þar er um að ræða snertilausar greiðslur. Þetta er tækni sem við höfum þegar tekið í notkun og stór hluti af þjónustuaðilum hefur þegar tekið í notkun slíka posa. Þetta er sama tækni og snjallseðlaveski EIKA byggir á, en það fór í loftið í mars“, útskýrir Scharning.

FJÖGUR TIL FIMM PRÓSENT ÁRIÐ 2017

Þrátt fyrir að farsímagreiðslur verði sífellt algengari er hlutfall þeirra af heildarfjölda greiðslna lítið. Þegar litið er til Norðurlandanna eru það Danir sem eru komnir lengst á veg og þar er það helst Mobile Pay sem nýtur vinsælda. Mobile Pay er enn sem komið er eingöngu í boði fyrir viðskiptavini Danske Bank. Swipe lausnin í Svíþjóð, staðgreiðslulausn, hefur einnig notið velgengni. Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar , sem Nets lét framkvæma í mars og náði til 3.400 neytenda, hafði aðeins einn af hverjum þremur nýtt sér farsímagreiðslur á meðan sama hlutfall svarenda hræddist að nýta sér slíkar greiðslur. Það voru fyrst og fremst efasemdir um öryggi sem gerði það að verkum að svarendur treystu sér ekki til að nýta þennan greiðslumáta.

Hver telur Nets að verði framtíðarþróun farsímagreiðslna?

„Snjallsímagreiðslur hafa aukist til muna frá ársbyrjun 2014. Við reiknum með því að snjallsímagreiðslur verðir um fjögur til fimm prósent allra greiðslna árið 2017. Við teljum einnig að fjöldi færslna verði mun hærri árið 2017 en í dag“, segir Tom Scharning og bætir við að lokum að „til langs tíma litið er erfitt að spá fyrir um hversu ör þróun farsímagreiðslna verður. Nú eru kynntar nýjar lausnir í mörgum löndum í hverri viku og virðiskeðjan er að þróast. Enginn veit hvaða kerfi sigrar að lokum, en við hjá Nets höfum rekið greiðslumiðlunarkerfi í fjölda ára og erum undirbúin fyrir ýmsar aðstæður sem upp gætu komið.“

Greinin var birt í afmælisriti SSF, nálgast má ritið hér: https://www.ssf.is/afmaelisrit-samtaka-starfsmanna-fjarmalafyrirtaekja/

Greinin birtist upprunalega í Finans Fokus. Þýðing Hólmar Örn Finnsson.

Search