skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Mínar síður – þitt svæði

Mínar síður – þitt svæði

Búið er að opna fyrir MÍNAR SÍÐUR á heimasíðu SSF. Félagsmenn skrá sig hér eftir inn á mínar síður til að sækja um í sjóði félagsins.  Mínar síður halda utan um umsóknir og sögu félagsmanns. Með tilkomu síðunnar verða umsóknir aðgengilegri fyrir félagsmenn og úthlutunin auðveldari.

Hægt er að nálgast Mínar síður ásamt leiðbeiningum um notkun þeirra á vefslóðinni http://minarsidur.ssf.is/login.php og/eða https://www.ssf.is/styrktarsjodur-2/592-2/.

Starfsfólk SSF bindur vonir við að þetta auðveldi félagsmönnum að nálgast upplýsingar og fylgjast með hvar mál eru stödd hverju sinni.

Ef eftirfarandi villa kemur upp við innskráningu ,,Því miður þá hefur þú ekki aðgang að þessu svæði” þá vinsamlegast sendið tölvupóst með nafni og kt. á ssf(hjá)ssf.is

SSF

Search