skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Starfsfólk RB safnaði fyrir Mæðrastyrksnefnd

Starfsfólk RB safnaði fyrir Mæðrastyrksnefnd

jolastarfsfolk_rb

Starfsfólk RB lét gott af sér leiða í desember með því að setja pakka undir jólatréð.  Pakkarnir voru afhentir Mæðrastyrksnefnd sem sér síðan um að koma pökkunum áfram til þeirra sem þurfa á að halda.  Ákveðið var að safna gjöfum handa eldri börnum og unglingum á aldrinum 12- 16 ára en samkvæmt Mæðrastyrksnefnd er þörfin á jólagjöfum brýnust þar.  Auk jólapakkasöfnunar starfsfólks ákvað RB auk þess að styrkja Mæðrastyrksnefnd um 50.000 krónur til kaupa á jólagjöfum handa börnum og unglingum.

„Það er ótrúlega gaman að geta lagt svona góðu málefni lið.  Mikil stemming hefur verið hér innanhúss í kringum söfnunina og pakkarnir verið að týnast smá saman undir jólatréð í mötuneytinu.  Vonandi mun þetta framtak koma að góðum notum þar sem hennar er mest þörf“ segir Guðrún Jóna Jónsdóttir formaður starfsmannafélags RB.

 

Search