skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Landsbankinn hlaut gullmerki jafnlaunaúttektar PwC

Landsbankinn hlaut gullmerki jafnlaunaúttektar PwC

Landsbankinn hlaut á dögunum gullmerki jafnlaunaúttektar PwC. Landsbankinn er stærsta fyrirtækið sem hefur undirgegngist úttekt PwC og fyrsti bankinn til að hljóta gullmerki jafnlaunaúttektarinnar.

Gullmerki Jafnlaunaúttektar PwC er veitt fyrirtækjum þar sem launamunur kynja er innan við 3,5% og staðfestir viðurkenningin að launamunur kynja hjá Landsbankanum sé innan þeirra marka.

Í frétt á heimasíðu Landsbankans kemur fram að „í Jafnlaunaúttekt PwC er gerð grein fyrir mun á grunnlaunum, föstum launum og heildarlaunum eftir kyni, þar sem tekið er mið af aldri, starfsaldri, menntun, starfaflokki, stöðu í skipuriti og vinnustundum. Rúmlega 1.100 manns starfa hjá Landsbankanum, þar af eru 39% karlar og 61% konur.“

Í fréttinni segir jafnframt að Landsbankinn hafi á undanförnum árum lagt töluverða áherslu á jafnréttismál. „Árið 2010 setti bankinn sér það markmið að hlutur hvors kyns um sig í forystusveit bankans skyldi ekki vera undir 40%. Í framkvæmdastjórn bankans eru fjórar konur og fjórir karlar að meðtöldum bankastjóra og bankinn uppfyllir einnig kröfur um jafnan hlut kvenna og karla í bankaráði. Í jafnréttisstefnu bankans kemur m.a. framað í Landsbankanum séu karlar og konur metin á eigin forsendum, hafi jafna möguleika og njóti sömu réttinda í starfi og til starfsframa. Í stefnunni kemur einnig fram að Landsbankinn stefni að jöfnu hlutfalli kynja meðal starfsmanna, að störf flokkist ekki sem karla- eða kvennastörf og að konum og körlum skuli greidd sömu laun fyrir jafn verðmæt störf“ segir í frétt Landsbankans.

Steinþór Pálsson bankastjóri segir í fréttatilkynningu bankans að bankinn hafi við lagt mikla áherslu á jafnréttismál á undanförnum árum. „Gullmerki PwC er mikilvæg staðfesting á stöðu jafnréttismála í bankanum og hvatning til að viðhalda þeirri stöðu til framtíðar. Við teljum að jafnrétti efli bankann og styrki stöðu hans í samkeppni um góða starfsmenn” segir Steinþór.

Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja óskar starfsfólki Landsbankans til hamingju með glæsilegan árangur í jafnréttismálum.

Search