skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Hátíðathöld – 1. maí

Hátíðathöld – 1. maí

SSF-33

Starfsfólk og stjórn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) óskar launþegum og landsmönnum öllum gleðilegs 1. maí.

Víða verða hátíðahöld og kaffisamlæti í dag:

Reykjavík

Dagskrá 1. maí hátíðarhaldanna í Reykjavík 2016 verður sem hér segir:

Safnast saman á Hlemmi kl. 13.00 en gangan hefst kl. 13.30
Lúðrasveitir leika í göngunni
Örræður á leið göngunnar niður Laugaveg
Útifundur á Ingólfstorgi hefst kl. 14.10
Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar taka á móti göngunni þegar hún kemur inn á Ingólfstorg.
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ flytur ávarp
Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélags Íslands flytur ávarp
Samúel Jón Samúelsson Big Band, Sigtryggur Baldursson og Parabólurnar
Fundarstjóri – Þórarinn Eyfjörð
Fundi slitið um kl. 15.00

Baráttukaffi hjá stéttarfélögunum að fundi loknum.

Upphitun VR fyrir kröfugönguna hefst kl. 11:00 á Klambratúni með fjölskylduhlaupi. Verkalýðskaffi VR verður svo með hefðbundnu sniði í anddyri Laugardalshallarinnar að loknum útifundinum kl. 15:00.
Efling-stéttarfélag býður félagsmönnum sínum upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda.
Baráttukaffi Rafiðnaðarsambands Íslands, MATVÍS og Grafíu verður á Stórhöfða 27, 1 hæð gengið inn Grafarvogsmegin og hefst kl. 15.00.
VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna býður félagsmönnum sínum upp á kaffi og meðlæti í Gullhömrum milli kl. 15:00 og 17:00.
FIT og Byggiðn í Reykjavík bjóða félagsmönnum sínum til kaffisamsætis kl. 15 á Grand hóteli við Sigtún.

Hafnarfjörður

Kl. 13:30  Safnast saman fyrir framan Ráðhús Hafnarfjarðar Strandgötu 6
kl. 14.00  Kröfuganga leggur af stað – Gengið verður upp Reykjavíkurveg, Hverfisgötu, Smyrlahraun, Arnarhraun, Sléttahraun og að Hraunseli við Flatahraun
Kl. 14:30  Hátíðarfundur hefst í Hraunseli, Flatahrauni 3 – Athugið húsið opnar ekki fyrr en kröfugangan kemur í hús
Fundastjóri – Jóhanna M. Fleckenstein
Ávarp dagsins – Linda Baldursdóttir Varaformaður Verkalýðsfélagsins Hlífar
Ræða – Elín Björg Jónsdóttir formaður BSRB
Skemmtiatriði – Sólmundur Hólm
Kaffihlaðborð í boði stéttafélaganna að fundi loknum

Akranes

Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, VR, FIT Félag iðn- og tæknigreina, Kennarasamband Íslands og Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á 1. maí. Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn hringur á neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast Skólahljómsveit Akraness. Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal Verkalýðsfélags Akraness á 3ju hæð Kirkjubrautar 40.
Fundarstjóri – Vilhjálmur Birgisson
Ræðumaður dagsins – Drífa Snædal, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands
Kvennakórinn Ymur syngur nokkur lög
Frítt í bíó fyrir börnin í Bíóhöllinni kl. 15:00
Kaffiveitingar

Borgarnes

Hátíðar- og baráttufundur hefst í Hjálmakletti kl. 11.00
Dagskrá:
Hátíðin sett – Signý Jóhannesdóttir formaður Stéttarfélags Vesturlands
Barnakór undir stjórn Steinunnar Árnadóttur syngur nokkur lög
Ræða dagsins – Sigurður Bessason formaður Eflingar stéttarfélags og 2. varaforseti ASÍ
Alda Dís og Mummi taka lagið
Freyjukórinn, Zsuzsanna Budai stjórnar
Kynnir – Hrefna Ásgeirsdóttir trúnaðarmaður Kjalar
Félögin bjóða samkomugestum í súpu og brauð að fundi loknum. Útskriftarnemar Menntaskólans sjá um veitingarnar.
Kvikmyndasýning fyrir börn verður í Óðali kl. 13:30, boðið verður upp á popp og ávaxtasafa

Stykkishólmur

Hótel Stykkishólmi kl.13:30
Kynnir: Helga Hafsteinsdóttir, formaður
Ræðumaður: Steinunn Magnúsdóttir grunnskólakennari Stykkishólmi
Karlakórinn Kári
Gylfi Örvarsson og Trausti Gunnarsson
Magga Stína og undirleikari
Kaffiveitingar

Grundarfjörður

Samkomuhúsinu kl.14:30
Kynnir: Bervin Sævar Guðmundson sjómaður
Ræðumaður: Valmundur Valmundarson formaður Sjómannasambands Íslands
Karlakórinn Kári
Gylfi Örvarsson og Trausti Gunnarsson
Magga Stína og undirleikari

Snæfellsbær

Félagsheimilinu Klifi kl.15:30
Kynnir: Guðmunda Wíum ritari SDS
Ræðumaður: Valmundur Valmundarson formaður Sjómannasambands Íslands
Karlakórinn Kári
Gylfi Örvarsson og Trausti Gunnarsson
Magga Stína og undirleikari
Kaffiveitingar
Sýning eldriborgara
Bíósýning kl 18

Búðardalur

1.maí 2016 samkoma í Dalabúð hefst kl.14:30
Dagskrá:
Kynnir – Kristín G. Ólafsdóttir
Ræðumaður – Garðar Hilmarsson formaður Starfsmannfélags Reykjavíkurborgar
Skemmtiatriði – Halldór Ólafsson (Lolli) trúbador og Valgeir Guðjónsson Stuðmaður
Kaffiveitingar

Ísafjörður

Lagt verður af stað frá Baldurshúsinu, Pólgötu kl. 13:45. Gengið verður að Pollgötu og þaðan niður að Edinborgarhúsi með Lúðrasveitina í fararbroddi.
Dagskráin í Edinborgarhúsi:
Lúðrasveit tónlistarskólans – Stjórnandi Madis Maekalle
Ræðumaður dagsins – Finnbogi Sveinbjörnsson formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga
Söngatriði – Stúlknatríóið HIK syngur nokkur lög
Jafnrétti og margbreytileiki – Sædís María Jónatansdóttir áhugakona um jafnréttismál
Tónlistaratriði – Sindri Freyr Sveinbjörnsson, Ísland got talent stjarna, spilar og syngur
Tónlistaratriði – Blúshljómsveitin Akur flytur nokkur lög
Kaffiveitingar í umsjón Slysavarnardeildarinnar Iðunnar í Guðmundarbúð, Sindragötu 6, að hátíðarhöldum loknum.
Kvikmyndasýningar fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og 16:00

Bolungarvík

Dagskráin hefst kl. 14:30
Kaffi og meðlæti í Félagsheimili Bolungarvíkur, 7. og 8. bekkur Grunnskólans sér um veitingarnar Tónlistarskóli Bolungarvíkur skemmtir með tónlist og söng, Hjörtur Traustason Voice stjarna syngur nokkur lög

Suðureyri

14:00 Kröfuganga frá Brekkukoti
Boðsund barna í Sundlaug Suðureyrar
Félagsheimili Súgfirðinga – Kaffiveitingar
Ræða dagsins –  Finnbogi Sveinbjörnsson formaður VerkVest
Tónlistarflutningur/ söngur barna. – HIK söngur stúlknatríó

Blönduós

Félagsheimilið á Blönduósi kl. 15.00
USAH  sér um kaffiveitingar að venju
Skarphéðinn Einarsson og hulduherinn hans  munu sjá um tónlistaratriði
Ræðumaður dagsins – Ósk Helgadóttir , varaformaður Framsýnar-stéttarfélags í Þingeyjarsýslum
Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps flytur nokkur lög, stjórnandi – Sveinn Árnason
Bíósýning fyrir börnin, góðar veitingar og frábær dagskrá

Akureyri

Kl. 13:30  Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
Kl. 14:00  Kröfuganga leggur af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá í HOFI að lokinni kröfugöngu
Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna  – Hildur Sif Sigurjónsdóttir, leikskólakennari og félagsmaður í KÍ  Aðalræða dagsins – Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju og SGS
Skemmtidagskrá – Hundur í óskilum verður með brot úr sögu verkalýðshreyfingarinnar Kór Akureyrarkirkju – Söngur Borgarasviðsins
Kaffiveitingar að lokinni dagskrá

Fjallabyggð

Dagskrá verður í sal félaganna,  Eyrargötu 24b Siglufirði milli kl. 14:30 og 17:00
Ávarp 1. maínefndar stéttarfélaganna – Margrét Jónsdóttir
Kaffiveitingar

Húsavík

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum standa fyrir veglegri hátíðardagskrá í Íþróttahöllinni á Húsavík 1. maí kl. 14:00.
Dagskrá:
Ávarp – Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar, stéttarfélags
Söngur – Karlakórinn Hreimur. Stjórnandi Steinþór Þráinsson. Undirleikari Steinunn Halldórsdóttir
Hátíðarræða – Halldór Grönvold aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ
Söngur og grín – Stefán Jakobsson ásamt Anda Ívarssyni flytja nokkur lög og grínast milli laga.
Gamanmál – Gísli Einarsson sjónvarpsmaður og skemmtikraftur
Söngur – Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen syngja nokkur þekkt dægurlög eins og þeim einum er lagið
Steingrímur Hallgrímsson spilar Internasjónalinn/alþýðusöng verkalýðsins í upphafi samkomunnar og Jóna Matthíasdóttir stjórnar samkomunni
Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á kaffi og meðlæti í boði stéttarfélaganna

Þórshöfn

16:00 Karlakór Akureyrar þenur raddböndin af alkunnri snilld í Þórshafnarkirkju
17:00 Kaffiveitingar í Þórsveri framreiddar af dugnaðarforkunum í kvenfélagi Þórshafnar
Kynning á Verkalýðsfélaginu og krakkar úr tónlistarskólanum spila
Hundur í óskilum slær botninn í samkomuna
Allir velkomnir jafnt félagsmenn sem utanfélagsmenn

Vopnafjörður

Hátíðardagskrá  verður í Félagsheimilinu Miklagarði kl.  14:00
Kvenfélagskonur sjá um kaffiveitingar.  Tónlistaratriði
Ræðumaður – Gunnar Smári Guðmundsson

Borgarfjörður eystri

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Fjarðarborg kl. 12:00
Kvenfélagið Eining sér  um veitingar
Ræðumaður – Reynir Arnórsson

Seyðisfjörður 

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Herðubreið kl. 15:00
8. og 9. bekkir Seyðisfjarðarskóla sjá um kaffiveitingar og skemmtiatriði
Ræðumaður – Lilja Björk Ívarsdóttir

Egilsstaðir

Hátíðardagskrá verður á Hótel Héraði  kl. 10.00
Morgunverður og tónlistaratriði
Ræðumaður – Sverrir Mar Albertsson

Reyðarfjörður

Hátíðardagskrá verður í Safnaðarheimili Reyðarfjarðar kl. 15:00
9. bekkur Grunnskóla Reyðarfjarðar sér um kaffiveitingar
Tónskóli Reyðarfjarðar
Ræðumaður – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir

Eskifjörður

Hátíðardagskrá verður í Melbæ Félagsheimili eldri borgara kl. 14:00
Félag eldri borgara sér um kaffiveitingar
Tónskóli Reyðarfjarðar
Ræðumaður – Sigurður Hólm Freysson

Neskaupstaður

Hátíðardagskrá verður á Hildibrand hótel kl. 14:00
Tónlistaratriði: Félag harmonikkuunnenda Neskaupstað
Ræðumaður – Sverrir Mar Albertsson

Fáskrúðsfjörður

Hátíðardagskrá verður í Félagsheimilinu Skrúði kl. 15:00
Kaffiveitingar. 9. bekkur grunnskólans sér um kaffiveitingar
Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður – Lars Jóhann Andrésson

Stöðvarfjörður

Hátíðardagskrá í Saxa guesthouse kl. 15:00
Kaffiveitingar. Tónlistarskóli Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar
Ræðumaður – Eva María Sigurðardóttir

Breiðdalsvík

Hátíðardagskrá verður  á Hótel Bláfelli  kl. 14:00
Kaffiveitingar og tónlistaratriði.
Ræðumaður – Elva Bára Indriðadóttir

Djúpavogur

Hátíðardagskrá verður á Hótel Framtíð  kl. 11:00
Morgunverður og tónlistaratriði.
Ræðumaður – Grétar Ólafsson

Hornafjörður

Kröfuganga frá Víkurbraut 4 kl 13:30, takið með ykkur kröfuspjöld
Hátíðardagskrá á Hótel Höfn kl. 14:00, kaffiveitingar
Lúðrasveit Hornafjarðar, tónlistaratriði
Ræðumaður – Grétar Ólafsson

Selfoss

Kröfuganga við undirleik Lúðrasveitar Selfoss kl. 11:00. Félagar úr Sleipni fara fyrir göngunni á hestum. Lagt verður af stað frá húsi stéttarfélaganna Austurvegi 56 og gengið að Hótel Selfossi þar sem hátíðardagskráin verður haldin innandyra.
Kynnir – Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar, stéttarfélags
Ræður dagsins – Hilmar Harðarson formaður Fit og Eva Dögg Einarsdóttir landvörður í Þjóðgarðinum á Þingvöllum
Skemmtiatriði – Danshópurinn Flækjufótur á Selfossi sýna línudans. Villi naglbítur syngur og skemmtir.
Glæsilegar kaffiveitingar í boði stéttarfélaganna í Hótel Selfoss. Sérstakt smáréttaborð fyrir börnin. Félagar úr Bifreiðaklúbbi Selfoss sýna stórglæsilega bíla sína. Teymt undir börnum í Sleipnishöllinni frá kl. 12:30.

Vestmannaeyjar

Dagskrá:
Kl. 14.00  Verkalýðsmessa í Landakirkju
Kl. 15.00  Baráttufundur og kaffisamsæti í Alþýðuhúsinu í boði stéttarfélaganna í Vestmannaeyjum
Kristín Valtýsdóttir flytur 1. maí ávarpið
Nemendur Tónlistarskóla Vestmannaeyja sjá um tónlistina
Kaffisamsæti í boði stéttarfélagana

Grindavík
Verkalýðsfélag Grindavíkur býður upp kaffi og meðlæti í Gjánni Grindavík sem kvenfélagið sér um frá kl. 15–17
Ræðumaður – Magnús Már Jakobsson
Brúðuleikhús og hoppikastalar við kirkjuna fyrir börnin frá kl 11.

Reykjanesbær

Hátíðardagskrá í Stapa
Kl.13:45 Húsið opnar, Guðmundur Hermannsson leikur létt lög
Kl.14:00 Setning Ólafur S. Magnússon, FIT
Söngur – Jóhanna Ruth Luna Jose
Ræða dagsins – Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR og 1. varaforseti ASÍ
Gamanmál – Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Söngur – Magnús Kjartansson
Sönghópur Suðurnesja, stjórnandi Magnús Kjartansson
Kynnir – Guðbrandur Einarsson formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja og formaður Landssambands ísl. Verslunarmanna.
Kl.13:00 – Börnum boðið á bíósýningu í Sambíói Keflavík

Sandgerði

Í tilefni af baráttudegi verkafólks 1. maí verður Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis með opið hús að Tjarnargötu 8, húsi félagsins frá kl. 15 – 17.
Kaffi og meðlæti.

Search