skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Framkvæmdastjóraskipti hjá Lífeyrissjóði bankamanna

Framkvæmdastjóraskipti hjá Lífeyrissjóði bankamanna

Nýr framkvæmdastjóri, Tryggvi Tryggvason, hefur verið skipaður hjá Lífeyrissjóði bankamanna og mun hann hefja störf í september 2015.

Tryggvi er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MSc gráðu í fjármálum frá University of Strathclyde í Glasgow.  Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Tryggvi er með 15 ára starfsreynslu úr fjármála- og bankageiranum og starfaði lengst af hjá Landsbankanum og dótturfélögum hans, m.a. sem forstöðumaður markaðsviðskipta, aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóðasviðs, framkvæmdastjóri Landsbankans í Lúxemborg og framkvæmdastjóri Landsvaka.  Síðar var Tryggvi framkvæmdastjóri fjárstýringar hjá Saga Fjárfestingarbanka.  Áður starfaði Tryggvi sem framkvæmdastjóri Kaupþings Norðurlands og sem sjóðsstjóri hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka.

Þá starfaði Tryggvi í 3 ár sem fjármálastjóri Karls K Karlssonar ehf. og um tíma sjálfstætt við fjármálaráðgjöf.

http://www.lifbank.is/forsida/

 

Search