skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

SSF mótið í keilu – Skráning

SSF mótið í keilu – Skráning

SSF – mótið í keilu verður haldið í Egilshöll dagana 9. og 11. maí kl. 18:00.

 Leikið verður tvö kvöld. Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt verðlaunaafhendingu og veitingum.

Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.

Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.

Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang [email protected]  fyrir kl. 12:00 föstudaginn 6. maí.

Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan ( helst í röð leikmanna á braut )

NET-fang : [email protected]

NET-bréf subject : “SSF_keila_2016 – heiti liðs”.

Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin.

Search