skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Miðstjórnarfundur NFU á Íslandi

Miðstjórnarfundur NFU á Íslandi

photo 1Miðstjórnarfundur Samtaka starfsmanna norrænna fjármálafyrirtækja (NFU) var haldinn í Reykjavík þann 23. okt. sl. SSF hefur verið fulltrúi Íslands sem aðili að NFU frá upphafi en samtökin voru stofnuð árið 1953 sem Norræna bankamannasambandið. Meginhlutverk NFU í dag er að vera sameiginlegur umsagnaraðili aðildarfélaganna gagnvart lagafrumvörpum Evrópusambandsins.

Á dagskrá fundarins voru hefðbundin miðstjórnarstörf þar sem farið var yfir skýrslu um störf stjórnar, strauma og stefnur NFU, aðildargjöld, starfsemisáætlun og kosningu stjórnar. Micheal Budolfsen var endurkjörinn formaður samtakanna á fundinum.

Á meðal þeirra sem fluttu erindi á fundinum voru Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, og Anna Karen Hauksdóttir, 1. varaformaður SSF. Erindi þeirra tengdust bæði þema málþingsins, um hvernig Íslandi hefur tekist að vinna sig út úr fjármálakreppunni.

Í erindinu sem Anna Karen flutti fór hún yfir það hvernig SSF brást við kreppunni og hvernig aðgerðir samtakanna snerust um að styðja við félagsmenn sína eftir áfall kreppunnar, tryggja laun þeirra og hjálpa þeim sem misst höfðu vinnuna við að missa ekki móðinn. Þá fór hún yfir það hvernig starfsumhverfi fjármálafyrirtækja hafi þróast frá árinu 2008, skattaþróun, ímyndarvinnu fjármálafyrirtækja, núverandi eignarhald og mögulega framtíð í þeim efnum sem og hvernig fjármálafyrirtækjunum gengur að endurvinna traust viðskiptavina og samfélagsins.

Steingrímur J. Sigfússon fór yfir það í erindi sínu hvernig Ísland hafi risið upp úr kreppunni og sagði m.a. að við gætum dregið þann lærdóm af fjármálakreppunni að það væri ótækt að hafa fjármálakerfi þar sem ágóðinn væri einkavæddur en skaðinn þjóðnýttur. Hann fór einnig yfir skyldu samfélagsins við að viðhalda velferðarkerfinu og veita lægstu tekjuhópunum skjól í  fjármálakreppu.

 

Search