skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

UNDIRBÚNINGSFUNDUR MEÐ SÁTTASEMJARA

UNDIRBÚNINGSFUNDUR MEÐ SÁTTASEMJARA

Formenn og framkvæmdastjóri SSF áttu undirbúningsfund með Sáttasemjara og aðstoðarsáttasemjara að morgni þann 21. desember. Þar kynntum við stöðu mála innan okkar raða og helstu áherslumál SSF í komandi viðræðum.

SSF hafði leitað eftir viðræðum við fjármálafyrirtækin áður en lokaviðræður um kjarasamning myndu hefjast, en þeirri beiðni var hafnað og okkur tilkynnt að SA myndu leiða viðræðurnar.

Stjórn SSF ákvað því að vísa málinu til Sáttasemjara. Sáttasemjari mun nú ræða við SA og í framhaldi af því verður sett upp tímasett verkáætlun fyrir samningaviðræður.

Search