skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

SSF MÓT Í KEILU 2.-3. MAÍ – TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU FYRIR 28. APRÍL

SSF MÓT Í KEILU 2.-3. MAÍ – TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU FYRIR 28. APRÍL

Mótið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.

Tvær breytingar verða á mótinu í ár, aðeins verða leyfðir tveir deildarspilarar í hverju liði og keppt verður í 3ggja manna liðum í karla- og kvennaflokki ekki 4ra manna liðum eins og áður. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.

Mótið verður haldið í Egilshöllinni dagana 2. og 3. maí kl. 19:00.

Leikið verður tvö kvöld. Fyrra kvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt verðlaunaafhendingu og veitingum.

Tilkynningu um þátttöku skal senda á netfang  [email protected]  fyrir kl. 12:00 föstudaginn 28. apríl.

Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan   (helst í röð leikmanna á braut )

Netfang : [email protected]

NET-bréf subject : “SSF_keila_2023 – heiti liðs”.

Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin

Search