skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

SENN KEMUR SUMAR!

SENN KEMUR SUMAR!

Nú þegar sumarið gengur í garð og vetur víkur er rétt að minna á að í hönd fer síðasti vinnustyttingarmánuður í bili, en vinnustyttingin er í flestum tilfellum nýtt þannig meðal félagsmanna að tekinn er hálfur frídagur í 9 mánuði, alla nema júní, júlí og ágúst.

Sumarið þýðir líka að nú fara ungmennin að streyma inn í bankana og þá er nú gott að geta sýnt fram á kosti þess að vera í stéttarfélagi.  Nýverið uppfærðum við  upplýsingabækling SSF, „Traustur bakhjarl“ og er hann kominn á heimasíðu SSF, https://vefbirting.prentmetoddi.is/ssf/Traustur-bakhjarl/.

Þennan bækling ættu allir sumarstarfsmenn að lesa sér til fróðleiks og ekki síður aðrir félagsmenn sem þurfa kannski að rifja upp kostina við það að vera félagsmaður í SSF.

Að þessu sögðu óskar stjórn SSF og starfsfólk skrifstofu öllum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars sem vonandi verður okkur öllum gott.

Search