skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

FORMAÐUR STARFSMANNAFÉLAGS ÍSLANDSBANKA TJÁIR SIG

FORMAÐUR STARFSMANNAFÉLAGS ÍSLANDSBANKA TJÁIR SIG

Íslandsbanki hefur verið mikið í umræðunni á undanförnum vikum. Á aukahluthafafundi bankans þann 28. júlí sl. kvaddi Oddur Sigurðsson formaður Starfsmannafélags Íslandsbanka og fyrsti varaformaður SSF sér hljóðs og benti á hvernig neikvæð umræða um bankann hefði bitnað á öllu starfsfólki hans sem fæst hefði nokkuð haft með sölu bankans að gera.

Oddur bendi á að einungis örfáir starfsmenn bankans hefðu komið að sölunni, sem hefur verið gagnrýnd mikið, og þess vegna sé mjög ósanngjarnt að bendla allt starfsfólk við slæleg vinnubrögð. Í hlekknum hér að neðan má sjá klippur úr umfjöllun RÚV um málið í fyrstu frétt.

Fréttir kl. 19_00 – 28.07.2023 _ RÚV Sjónvarp

 

 

Search