skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

FÖGNUM 1. MAÍ

FÖGNUM 1. MAÍ

Í dag höldum við upp á 1. maí, og minnumst þess að réttindi launafólks fengust ekki án baráttu.

Það sem okkur finnast sjálfsögð réttindi í dag eins og atvinnuleysisbætur, fengust í gegn eftir áralanga baráttu.  Hann var stofnaður formlega 1956 í kjölfar 6 vikna verkfalls á árinu 1955 og eftir að hafa gefið eftir 10% af launakröfum. Á RÚV hafa undanfarnar vikur verið fluttir 3 áhugaverðir þættir um “Öryggisjóð verkalýðsins” fyrir þá sem vilja kynna sér sögu sjóðsins betur.

Bankastarfsfólk sem aðrir hafa notið góðs af tilurð Atvinnuleysistryggingasjóðs í gegn um tíðina, ekki síst í kjölfar bankahrunsins 2008.

Það er gott að minnast þessa og annarra réttinda 1. maí og þakka þeim sem stóðu í baráttunni þá sem nú.

Til hamingju með daginn!

 

Search