Beint í efni

Styrktarsjóður

Úthlutunarreglur

Almenn skilyrði og gögn

Umsókn skal berast rafrænt í gegnum "Mínar síður". Henni skal fylgja reikningur vegna þjónustunnar og sérstök staðfesting á greiðslu, svo sem greiðslukvittun úr banka eða kortayfirlit. Greiðslukvittun ein og sér telst ekki fullnægjandi nema hún geymi jafnframt allar upplýsingar sem krafist er á reikningi. Beiðni frá lækni eða læknisvottorð skal einnig fylgja þegar þess er sérstaklega krafist í úthlutunarreglunum. Kostnaður við umbeðið læknisvottorð er endurgreiddur gegn framvísun reiknings og greiðslustaðfestingar.

Reikningur skal vera nægilega rekjanlegur til að unnt sé að sannreyna þjónustuveitanda, umsækjanda, tegund þjónustu, þjónustudag og fjárhæð. Rafrænn eða erlendur reikningur er tekinn gildur ef hann sýnir að lágmarki útgefanda, tengingu þjónustunnar við umsækjanda, lýsingu á þjónustu, dagsetningu, fjárhæð og gjaldmiðil. Handskrifaður reikningur eða reikningur úr reikningahefti er ekki sjálfkrafa útilokaður, en hann skal sýna nafn þjónustuveitanda og kennitölu eða annað rekjanlegt auðkenni, dagsetningu, lýsingu þjónustu og fjárhæð. Sérstök greiðslustaðfesting skal fylgja öllum reikningum. Áritunin 'greitt' á reikningi telst ekki ein og sér fullnægjandi greiðslustaðfesting.

Því skýrari gögn og skýringar sem fylgja umsókn, þeim mun greiðari verður afgreiðslan. Ef gögn skortir skal umsækjanda að jafnaði veittur hæfilegur frestur til að bæta úr áður en umsókn er hafnað.

Styrkir eru aldrei greiddir vegna reikninga sem eru eldri en 12 mánaða.  Sama á við um þjónustu sem veitt hefur verið félagsmanni fyrir meira en 12 mánuðum.

Fullur réttur næst þegar félagsmaður hefur greitt í sjóðinn í 6 mánuði samfleytt. Réttindi í sjóðinn miðast við það tímabil sem viðkomandi greiðir félagsgjald til SSF og þarf sú þjónusta, sem sótt er um endurgreiðslu vegna, að hafa verið veitt á því tímabili. Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda.

Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktar- og Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda. Fái félagsmaður eingreiðslu við starfslok þarf hann að gæta þess að stéttarfélagsgjald sé greitt fyrir allt starfslokatímabilið. Sér reglur gilda um Menntunarsjóðinn ef félagsmaður lendir í viðvarandi atvinnuleysi, en lesa má nánar um þær í úthlutunarreglum sjóðsins.

Dvöl á heilsustofnun
Dánarbætur og útfararstyrkir
Foreldranámskeið
Göngugreining og hjálpartæki
Heilsufarsskoðun
Heyrnartæki
Krabbameinsskoðun
Laseraðgerðir á augum og augasteinsaðgerðir
Linsur
Sálfræðimeðferð
Sjóngler
Sjúkradagapeningar
Sjúkraþjálfun, nudd, kírópraktík, osteópatía
Tækni- og glasafrjóvgun og ættleiðingar
Þyngdarstjórnun

Markmið, fjármögnun og skattlagning

Meginverkefni Styrktarsjóðs SSF er að greiða dagpeninga til félagsmanna sem missa laun vegna sjúkdóma eða slysa og að styrkja félagsmenn vegna fyrirbyggjandi skoðana og meðferða, svo sem krabbameins- og hjartaskoðana og sjúkraþjálfunar.

Greiðslur úr Styrktarsjóði eru skattskyldar. Aðeins er tekin staðgreiðsla af sjúkradagpeningum, en ekki almennum styrkjum, og skattur af almennum styrkjum greiðist því við álagningu næsta árs.

Sjóðurinn er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda sem nemur 0,7% af mánaðarlaunum félagsmanna. Þar sem fjármagn sjóðsins er takmarkað þarf einnig að takmarka til hvaða málaflokka er greitt hverju sinni. Úthlutunarreglurnar eru í stöðugri endurskoðun svo unnt sé að sinna meginverkefnum sjóðsins.

Samþykkt á fundi stjórnar Styrktarsjóðs SSF þann 9. september 2019 og tóku gildi sama dag. Breytingar samkvæmt þessum drögum taka gildi þegar þær hafa cerið samþykktar af þar til bærum aðila.

Samþykkt og gildistaka

Grunnreglurnar voru samþykktar á fundi stjórnar Styrktarsjóðs SSF 9. september 2019 og tóku gildi sama dag. Breytingar samkvæmt þessum drögum taka gildi þegar þær hafa verið samþykktar af þar til bærum aðila.

Umsókn

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Mínar síður á heimasíðu SSF og tengja frumrit kvittana við umsókn.

Vinsamlega gætið þess að fylla umsóknina vel og skilmerkilega út og flýta þannig fyrir afgreiðslu með réttum upplýsingum. Góð regla er að kanna þegar sótt er um styrk hvort allar upplýsingar á "Mínum síðum" eru réttar, svo sem netfang og reikningsnúmer.

Ef eftirfarandi villa kemur upp við innskráningu ,,Því miður þá hefur þú ekki aðgang að þessu svæði” þá vinsamlegast sendið tölvupóst með nafni og kennitölu á ssf@ssf.is

Umsókn um sjúkradagpeninga

Vinsamlega gætið þess að fylla umsókn vel og skilmerkilega út og flýtið þannig fyrir afgreiðslu með réttum upplýsingum. Góð regla er að kanna þegar sótt er um styrk hvort allar upplýsingar á "Mínum síðum" eru réttar, svo sem netfang og reikningsnúmer.

Sótt er um sjúkradagpeninga á “mínum síðum” á vef SSF.

Ef eftirfarandi villa kemur upp við innskráningu ,,Því miður þá hefur þú ekki aðgang að þessu svæði” þá vinsamlegast sendið tölvupóst með nafni og kennitölu á ssf@ssf.is

Samþykktir Styrktarsjóðs

Fjármögnun Styrktarsjóðs

Styrktarsjóðurinn er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda sem greiða upphæð sem nemur 0,7% af heildarmánaðarlaunum félagsmanns. Þar sem fjármagn sjóðsins er takmarkað verður einnig að takmarka til hvaða málaflokka er greitt hverju sinni. Úthlutunarreglur eru í stöðugri endurskoðun, með tilliti til þess að hægt sé að sinna meginverkefnum sjóðsins.

Efnisval

  • Úthlutunarreglur
  • Umsókn
  • Umsókn um sjúkradagpeninga
  • Samþykktir Styrktarsjóðs
  • Fjármögnun Styrktarsjóðs