Fæðingar- og foreldraorlof
Mótgreiðslur í fæðingarorlofi
Frá og með 1. janúar 2025 verða mánaðarlegar greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði til foreldris í fullu fæðingarorlofi 80% af meðaltali heildarlauna eða reiknaðs endurgjalds fyrir tiltekin tímabil vegna barna sem fæðast frá og með 1. janúar 2025, þó aldrei hærri en kr. 800.000. Sjá nánar á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs.
Viðmiðunarþak sjóðsins skv. grein 6.2.1. í kjarasamningi SSF er því kr. 1.000.000,
800.000/0,8 = kr. 1.000.000.
Allir, sem eru fastráðnir starfsmenn og hafa mánaðarlaun kr. 1.000.000 eða lægri, halda því 100% launum í allt að 7,5 mánaða fæðingarorlofi. Þeir sem eru með hærri mánaðarlaun en kr. 1.000.000 fá þá kr. 200.000 frá fyrirtækinu í allt að 7,5 mánuði.
Fæðingarstyrkur
Fastráðinn félagsmaður á rétt á fæðingarstyrk samkvæmt kjarasamningi, en styrkurinn er greiddur af vinnuveitanda (ekki SSF) og þarf að sækja um hjá mannauðsdeild viðkomandi fyrirtækis. Þegar barnið er fætt lætur foreldri launagreiðanda vita.
Styrkurinn er eftirfarandi til fastráðinna félagsmanna:
Frá 1. febrúar 2024 kr. 93.377, frá 1. janúar 2025 kr. 96.645, frá 1. janúar 2026 kr. 100.028 og frá 1. janúar 2027 kr. 103.529
Markmið fæðingar- og foreldraorlofs er að tryggja foreldrum sem besta möguleika til að vera samvistum við börn sín, einkum á fyrstu æviárum þeirra. Jafnframt að tryggja börnum rétt til samvista við báða foreldra sína.
Í lögunum er kveðið á um að sjálfstæður réttur hvors foreldris er 6 mánuðir en heimilt er að framselja allt að 1,5 mánuði milli foreldra. Þannig getur annað foreldrið tekið allt að 7,5 mánuði af 12 mánaða réttinum og hitt foreldrið 4,5 mánuði henti það aðstæðum foreldra. Nánari upplýsingar hjá Fæðingarorlofssjóði.
Foreldraorlof
Lögin tryggja einnig sjálfstæðan rétt foreldris til fjögurra mánaða foreldraorlofs til að annast barn. Þessi réttur er ekki framseljanlegur og nær til sömu tilvika og rétturinn til fæðingarorlofs. Rétturinn til foreldraorlofs skapast eftir sex mánaða samfellt starf, en fellur niður þegar barn hefur náð 8 ára aldri. Þó geta foreldrar átt rétt til töku foreldraorlofs allt að 8 ára aldri barns hafi rétturinn ekki verið fullnýttur og það greinist síðar með alvarlegan og langvinnan sjúkdóm. Rétti til foreldraorlofs fylgir ekki réttur til greiðslu úr Fæðingarorlofssjóði. Sjá nánar á heimasíðu Fæðingarorlofssjóðs.
Efnisval
- Mótgreiðslur í fæðingarorlofi
- Fæðingarstyrkur
- Foreldraorlof