Beint í efni

Menntunarsjóður

Úthlutunarreglur

1. Um sjóðinn

Markmið Menntunarsjóðs SSF er að efla þekkingu, færni og starfsþróun félagsmanna og styrkja stöðu þeirra á vinnumarkaði. Sjóðurinn veitir styrki vegna kostnaðar við menntun, símenntun og endurmenntun, námskeið í námstækni og námskeið sem nýtast til félagsstarfa.

Ekki er gerð krafa um að nám eða námskeið tengist beint núverandi starfi félagsmanns. Við mat á styrkhæfi skal meðal annars líta til meginmarkmiðs námsins eða námskeiðsins, skilgreindra námsmarkmiða, lengdar, fjölda kennslustunda eða skipta, kennslu eða leiðsagnar og þess hvort námið veiti formleg réttindi eða staðfesta faglega færni. Ekkert eitt þessara atriða ræður úrslitum. Einnig má líta til þess hvort námið efli almenna starfshæfni eða möguleika félagsmanns til starfsþróunar eða framtíðarstarfa. Matið skal ekki fela í sér útvíkkun á verkefnum sjóðsins umfram samþykktir hans.

Stjórn sjóðsins er heimilt að hafna umsókn ef hún uppfyllir ekki skilyrði reglnanna eða tilgangur hennar er andstæður markmiðum sjóðsins. Vafamál um flokkun náms eða námskeiðs skulu lögð fyrir stjórn sjóðsins, sem tekur endanlega ákvörðun. Sambærileg mál skulu afgreidd með samræmdum hætti og á grundvelli málefnalegra sjónarmiða.

Sjóðurinn er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda, sem greiða upphæð sem nemur 0,3% af heildarmánaðarlaunum starfsmanna.

Fullur réttur næst þegar félagsmaður hefur greitt í sjóðinn í 6 mánuði samfleytt. Réttindi í sjóðinn miðast við það tímabil sem viðkomandi greiðir félagsgjald til SSF og þarf sú þjónusta sem sótt er um endurgreiðslu vegna að hafa verið veitt á því tímabili. Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda.

Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktar- og Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda. Fái félagsmaður eingreiðslu við starfslok þarf hann að gæta þess að stéttarfélagsgjald sé greitt fyrir allt starfslokatímabilið. Sér reglur gilda um Menntunarsjóðinn ef félagsmaður lendir í viðvarandi atvinnuleysi, en lesa má nánar um þær í úthlutunarreglum sjóðsins.

2. Styrkhæfur kostnaður, hámarksstyrkur og umsóknarfrestur

Einungis eru veittir styrkir vegna náms- eða námskeiðsgjalda en ekki vegna annars kostnaðar sem fellur til við námið; svo sem bókakostnaðar, ferðakostnaðar eða gistikostnaðar.

Hámarksstyrkur á misseri er 80% af náms- eða námskeiðsgjöldum, þó aldrei hærri en 175.000 kr. Styrkupphæðinni má deila milli menntunarflokka, en samanlagðir styrkir mega aldrei nema meira en 175.000 kr. á hverju misseri. Styrkur getur aldrei orðið hærri en sá kostnaður sem félagsmaður ber sjálfur að teknu tilliti til afslátta, endurgreiðslna eða styrkja frá öðrum aðilum.

Almanaksárinu er skipt í þrjú misseri: vormisseri frá 1. janúar til 31. maí, sumarmisseri frá 1. júní til 31. ágúst og haustmisseri frá 1. september til 31. desember. Félagsmaður getur sótt um hámarksstyrk fyrir hvert misseri sem hann stundar sannanlega nám. Sækja verður um hvert misseri innan 12 mánaða frá greiðsludegi.

Ef eitt samfellt nám eða námskeið spannar fleiri en eitt misseri er heimilt að sækja um styrk vegna hvers misseris sem sannanleg námsþátttaka fer fram á. Sama námsgjald eða kostnaðarliður verður þó ekki endurgreiddur oftar en einu sinni. Sé eitt heildarnámsgjald greitt fyrir allt námið skal umsækjandi leggja fram gögn frá skóla eða fræðsluaðila sem sýna námstímabil og, eftir því sem unnt er, skiptingu kostnaðar eða námsálags milli missera.

Réttur í sjóðinn miðast við það tímabil sem viðkomandi greiðir félagsgjald til SSF og skal námið eða námskeiðið sem sótt er um endurgreiðslu vegna hafa verið stundað á því tímabili. Hætti félagsmaður störfum hjá aðildarfyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á hann fullan rétt á almennum styrkjum úr Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir síðustu greiðslu félagsgjalda.

Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktar- og Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda. Fái félagsmaður eingreiðslu við starfslok þarf hann að gæta þess að stéttarfélagsgjald sé greitt fyrir allt starfslokatímabilið. Sér reglur gilda um Menntunarsjóðinn ef félagsmaður lendir í viðvarandi atvinnuleysi, en lesa má nánar um þær í úthlutunarreglum sjóðsins.

3. Fullgild umsókn

Umsókn í Menntunarsjóð SSF skal skila rafrænt í gegnum "Mínar síður" á www.ssf.is innan tilskilins frests. Með skilmerkilega útfylltri umsókn skulu fylgja eftirfarandi gögn eftir því sem við á:

  • Reikningur eða greiðslukvittun vegna náms- eða námskeiðsgjalds þar sem fram kemur nafn félagsmanns og, eftir því sem við á, kennitala eða annað auðkenni sem tengir kostnaðinn við umsækjanda, ásamt staðfestingu á greiðslu.
  • Staðfesting á skólavist eða námsframvindu. Hún getur verið vottorð frá skóla eða skjáskot úr innra kerfi skólans sem sýnir nafn eða kennitölu námsmanns, námstímabil og áfanga.
  • Umsóknum í aðra flokka skal fylgja fullnægjandi reikningur og greiðslustaðfesting. Reikningur frá íslenskum þjónustuaðila skal uppfylla almennar kröfur um sölureikninga. Erlendur eða rafrænn reikningur skal að lágmarki sýna útgefanda, kaupanda eða þátttakanda eftir því sem við á, lýsingu á námskeiði eða þjónustu, fjárhæð, gjaldmiðil og dagsetningu. Skila þarf inn staðfestingu á greiðslu í ISK með erlendum reikningum.
    Dæmi um löglegan reikning.

Styrkur er ekki greiddur nema fullnægjandi gögn fylgi umsókn. Ef gögn skortir skal umsækjanda að jafnaði veittur hæfilegur frestur til að bæta úr. Umsækjandi sem er ekki lengur við störf hjá aðildarfyrirtæki skal uppfæra upplýsingar, svo sem netfang, á "Mínum síðum" eftir þörfum.

4. Styrkhæft nám og greiðslur

Sumarstarfsmenn eða aðrir lausráðnir félagsmenn:
Sumarstarfsmenn, eða aðrir lausráðnir félagsmenn sem starfa samfellt í 6 mánuði eða skemur, geta sótt um styrk sem nemur allt að 80% af námskeiðsgjaldi, að hámarki 30.000 kr. á hverju almanaksári. Greitt er vegna náms eða tómstundanámskeiðs sem fellur undir úthlutunarreglur þessar og viðkomandi sækir á því ári sem styrkur er greiddur fyrir.

Félagsmenn með lengri en 6 mánaða samfelldan starfstíma:

Endurmenntun, styttri námsleiðir, tungumálanám og verðbréfaréttindi
Háskólanám (B.A., B.S. / M.A., M.S.)
Nám á framhaldsskólastigi og starfsréttindi 
Sjálfsstyrking
Tómstundastyrkur

5. Sérreglur

a) Atvinnulausir félagsmenn
Atvinnulausir félagsmenn SSF geta sótt um styrki í allt að 2 ár eftir starfslok vegna náms sem þeir stunda, enda hafi þeir ekki verið í launuðu starfi á tímabilinu. Umsókn skal fylgja afrit úr staðgreiðsluskrá á þjónustuvef Skattsins fyrir tímabilið frá starfslokum. Hana finnið þið á vef Skattsins.

b) Félagsmenn sem taka sér launalaust leyfi
Félagsmenn sem taka sér launalaust leyfi frá störfum í allt að 12 mánuði en snúa aftur til starfa að loknu námi, þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að halda sama rétti: 

  • Að hafa unnið í tvo mánuði að loknu námi. 
  • Hafa a.m.k. þriggja ára samfellda starfsreynslu skv kjarasamningi SSF við upphaf náms.
  • Sýna gilda námsframvindu á tímabilinu.

Ákvæði þetta gildir einu sinni fyrir hvern einstakling. 

Samþykkt og gildistaka

Grunnreglurnar voru samþykktar á fundi stjórnar SSF 29. apríl 2021 og tóku gildi 1. maí 2021. Breytingar samkvæmt þessum drögum taka gildi þegar þær hafa verið samþykktar af þar til bærum aðila.

Athugið að greiðslur úr Menntunarsjóði eru framtalsskyldar á skattframtali.

Umsókn

Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum Mínar síður SSF á heimasíðu SSF. Tengja skal frumrit kvittana við umsókn auk staðfestingar á þátttöku í námi/námskeiði.

Vinsamlega gætið þess að fylla umsókn vel og skilmerkilega út og flýta þannig fyrir afgreiðslu með réttum upplýsingum. Góð regla er að kanna, þegar sótt er um styrk, hvort allar upplýsingar á "Mínum síðum" eru réttar, svo sem netfang og bankareikningsnúmer.

Umsókn um styrk: ýttu hér til að fara á innskráningarsíðu (Mínar síður).

Ef eftirfarandi villa kemur upp við innskráningu ,,Því miður þá hefur þú ekki aðgang að þessu svæði” þá vinsamlegast sendið tölvupóst með nafni og kennitölu á ssf@ssf.is

Samþykktir Menntunarsjóðs

Fjármögnun Menntunarsjóðs

Menntunarsjóður er eingöngu fjármagnaður með framlagi atvinnurekenda sem greiða upphæð sem nemur 0,3% af heildarmánaðarlaunum félagsmanna.

Efnisval

  • Úthlutunarreglur
  • Umsókn
  • Samþykktir Menntunarsjóðs
  • Fjármögnun Menntunarsjóðs