Sjóðir SSF
Stjórnir sjóðanna vekja athygli á því að þegar sótt er um styrk í sjóðina, þarf að skila rafrænu umsóknarblaði í gegnum "Mínar síður" SSF. Öll fylgigögn, reikningar, staðfesting á námi og annað það sem kveðið er á um í úthlutunareglum sjóðanna skal skanna og tengja við umsókn.
Réttur í sjóðina miðast við það tímabil sem viðkomandi greiðir félagsgjald til SSF og þarf sú þjónusta sem sótt er um endurgreiðslu vegna að hafa verið veitt á því tímabili. Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktar- og Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda. Sér reglur gilda um Menntunarsjóðinn ef félagsmaður lendir í viðvarandi atvinnuleysi, en lesa má nánar um þær í úthlutunarreglum sjóðsins.
Hætti félagsmaður störfum hjá fjármálafyrirtæki eftir að hafa greitt félagsgjald samfellt í að minnsta kosti 6 mánuði á viðkomandi fullan rétt á almennum styrkjum úr Styrktar- og Menntunarsjóði í 6 mánuði eftir að síðustu félagsgjöld berast félaginu frá launagreiðanda. Fái félagsmaður eingreiðslu við starfslok þarf hann að gæta þess að stéttarfélagsgjald sé greitt fyrir allt starfslokatímabilið. Sér reglur gilda um Menntunarsjóðinn ef félagsmaður lendir í viðvarandi atvinnuleysi, en lesa má nánar um þær í úthlutunarreglum sjóðsins.
