15. desember 2015
Sjóðir SSF og afgreiðsla umsókna um áramót
Umsóknarfrestur í Menntunarsjóð SSF er til 15. janúar vegna sumar- og haustannar 2015. Eftir að umsóknarfrestur er liðinn verða unnið með umsóknir og gera má ráð fyrir að það geti tekið allt að tvær vikur áður en styrkir verða afgreiddir. Umsóknir í Styrktarsjóð SSF sem berast fyrir 17. desember verða afgreiddar fyrir áramót. Fyrsta afgreiðsla eftir áramót er áætluð þann 8. janúar. Athygli er vakin á því að styrkir eru aldrei afgreiddir vegna reikninga sem eru eldri en 12 mánaða. Sama á við um þjónustu sem veitt hefur verið félagsmanni fyrir meira en 12 mánuðum. Vinsamlega látið berast til félagsmanna. Með jólakveðju, Rósa Jennadóttir Umsjónarmaður sjóða
Dagsetning
15. desember 2015Deila