Beint í efni

19. desember 2025

NÝ LAUNAREIKNIVÉL KOMIN Á SÍÐU SSF

Nú er búið að setja nýjustu gögn úr launakönnuninni 2025 inn í launareiknivélina á heimasíðunni ásamt því að reiknivélin sjálf hefur verið uppfærð og sett í nútímalegri búning.
Launareiknivélin auðvitað ekki fullkomið tól. Eftir því sem fleiri breytur er settar inn, þeim mun meira fækkar þeim gögnum sem reiknivélin vinnur með og þá verða stundum of fáir í úrtaki til þess að reiknivélin skili niðurstöðu. En það er um að gera að prófa sig áfram og kynnast reiknivélinni og fá þannig nokkuð raunsanna mynd af stöðu og staðsetningu í launastiganum.

Önnur leið til þess að átta sig á stöðu sinni er að skoða töflurnar á bls. 147 og 148 í launakönnuninni, en nánari skýringar á þeim töflum má finna í fræðsluefni um launaviðtöl sem SSF setti inn á heimasíðuna í sumar og má finna hér. Og heildarniðurstöður könnunarinnar má að sjálfsgöðu kynna sér í þessari samantekt.

Dagsetning
19. desember 2025
Deila