Beint í efni

2. júní 2026

ERFIÐIR TÍMAR HJÁ STARFSFÓLKI Á FJÁRMÁLAMARKAÐI

Í lok maí misstu 37 félagsmenn SSF starfið hjá greiðslumiðlunarfyrirtækinu Rapyd Europe og ekki er langt síðan álíka viðamikilar uppsagnir urðu hjá Íslandsbanka. Þessu til viðbótar er greinilegt að ýmsar hagræðingaraðgerðir eru í gangi í greininni, sem hafa leitt til einstakra uppsagna.

Ástæður þessara uppsagna eru oft sagðar vera skipulagsbreytingar en því til viðbótar hefur komist í tísku meðal fyrirtækja að benda á þróun og notkun gervigreindar sem ástæðu. Það er eins og forsvarsmenn fyrirtækja telji að tilvísun í notkun gervigreindar geri uppsagnir fullkomlega eðlilegar! Starfsfólk téðra fyrirtækja kannast yfirleitt ekki við að gervigreind geti verið meginástæða uppsagna. Til eru margar sögur af fyrirtækjum, sem einbeita sér að því að nota gervigreind til þess að aðstoða starfsfólk í störfum sínum svo það nái betri árangri, ekki síst í persónulegri þjónustu til viðskiptavina. Í slíkum fyrirtækjum dettur engum í hug að tengja notkun gervigreindar við þörf á uppsögnum.

Þann 1. júní sl. var opið hús á skrifstofu SSF fyrir það starfsfólk sem missti vinnuna hjá Rapyd um mánaðamótin og mætti stór hluti þeirra á fundinn. Fundurinn snérist að hluta um að upplýsa fólk sem lendir í uppsögnum um stöðu þess og réttindi hjá stéttarfélaginu, en það var líka augljóst að hópurinn hafið mikla þörf til þess að spjalla saman innbyrðis.  Hér má skoða lítinn upplýsingableðil um réttindi félagsmanna við starfslok, sem við dreifðum til hópsins.

Skrifstofa SSF er opin virka daga frá klukkan 09-12 og 13-16 og alltaf er hægt að leita til okkar í síma 540 6100 eða í gegnum netfangið ssf@ssf.is. Við tökum hlýlega á móti þeim sem til okkar vilja leita.

Dagsetning
2. júní 2026
Deila