Beint í efni

20. nóvember 2017

Desemberuppbót

Desemberuppbót miðað við fullt starf árið 2017 er kr. 86.000,- og skal greiða hana eigi síðar en 15. desember.  Allir félagsmenn á fyrirframgreiddum launum fá desemberuppbótina greidda með launum 1. desember 2017. Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.

Dagsetning
20. nóvember 2017
Deila