skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Tíðindalítill fundur hjá Ríkissáttasemjara

Tíðindalítill fundur hjá Ríkissáttasemjara

Fyrsta fundi í kjaradeilu Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtaka atvinnulífisins hjá Ríkissáttasemjara lauk nú rétt eftir hádegið í dag (fimmtudaginn 27.08.2015). Fundinum lauk án niðurstöðu en deiluaðilar skiptust á upplýsingum og fóru yfir þann hnút sem kjaradeilan er í.

Búið er að boða annan fund á morgun þar sem búast má við því að deiluaðilar leggi fram nánari útreikning en enn sem komið er hefur viðræðunefnd SSF eingöngu fengið óformleg tilboð með lægri kostnaðarauka á samningstímanum en þegar gerðir kjarasamningar á almenna og opinbera markaðnum.

 

Search