skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

SSF blaðið er komið út

SSF blaðið er komið út

ssf_bladid_des_2016_forsidaNýjasta tölublað Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja er komið út. Forsíðuviðtal blaðsins er við Hildi Högnadóttur sem lét nýlega af störfum eftir tæplega 53 ár í fjármálageiranum. Hún segir vinnuna í bankanum hafa breyst mikið en eitt hafi þó ávallt verið eins og það sé gott samstarfsfólk. Í blaðinu er auk þess fjallað um mikilvægi þess að starfsaldur sé rétt skráður, mótframlag vinnuveitanda í fæðingarorlofi, nýja viðbót við kjarasamning og sögu lífeyrisréttinda félagsmanna SSF. Ari Skúlason, 2. varaformaður SSF, skrifar um fjármálafyrirtæki í breyttum heimi og blaðið ræðir við Hörpu Jónsdóttur, nýráðinn framkvæmdastjóra fjármálastöðugleika í Seðlabankanum.

Skoða blaðið: SSF blaðið – desember 2016

Search