skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Plastlaus september

Plastlaus september

Margnota SSF innkaupapokar.

SSF tekur þátt í árverkniátakinu Plastlaus september. Átakið er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. SSF hvetur félagsmenn sína og aðra til að taka þátt í Plastlausum september, og vonar að þátttaka í átakinu leiði til minni plastnotkunar til frambúðar.
Nýlega senda SSF öllum sínum félagsmönnum margnota innkaupapoka til að auðvelda þeim að draga úr notkun á plasti með því að skipta margnota innkaupapokunum inn í stað plastpokanna.

Af hverju eigum við að sleppa plasti?
Plast endist í þúsundir ára og er því afar slæmur kostur fyrir einnota notkun. Plast brotnar niður á mjög löngum tíma og þá í örplast sem ekki er betra fyrir umhverfið.
Plast er eingöngu hægt að endurvinna í annað plast af lélegri gæðum. Allt plast sem við notum og fer ekki til endurvinnslu, safnast fyrir á urðunarstöðum eða í nátturunni og veldur þar skaða um ókomna tíð.  Plast endar allt of oft í náttúrunni, og þá sérstaklega í ám, vötnum og sjó. Plast dregur til sín ýmis mengunarefni og þegar það endar í vef lífvera geta efnin þar með endað í fæðu okkar. Mjúkplast inniheldur stundum hormónaraskandi efni (t.d. þalöt) sem eru skaðleg mannfólki.

Search