skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Niðurstöður Launakönnunar 2018

Niðurstöður Launakönnunar 2018

Launakönnun meðal félagsmanna SSF fór fram dagana 5. -25. október 2018.  Þátttaka var frábær og langt um betri en hjá flest öllum öðrum stéttarfélögum sem framkvæma launakannanir. 3.764 umslögum með lykilorðum var deift til félagsmanna og og tóku 2.786 þeirra þátt í könnuninni, það er 74%.  Könnunin gefur því mjög ábyggilega mynd af kaupi og kjörum félagsmanna SSF.  Könnunin er afar víðtæk þar sem spurt er um laun, vinnutíma, áherslur í næstu kjarasamningum, reynslu af áreiti o.fl.

Gefið ykkur góðan tíma til að fletta í gegnum niðurstöðurnar, ykkur til fróðleiks um kaup og kjör, ásamt öðrum vinnutengdum þátt í starfi félagsmanna SSF.

Félagsmenn sem vilja sjá nokkuð glögga mynd af launum, dreifingu þeirra og stöðu ákveðinna hópa er bent á að lesa blaðsíður 56, 57 og 58 og aftast blaðsíður 130, 131 og 132.  Hver og einn félagsmaður SSF getur skoðað og metið eigin launaröðun og borið saman við laun annarra í svipaðri stöðu miðað við starfssvið, menntun og reynslu.  Á næstu vikum verður launareiknivél SSF uppfærð með gögnum úr launakönnuninni, þegar því er lokið verður frétt þess efnis birt á heimasíðu SSF og Facebook.

Niðurstöður launakönnunar 2018 má nálgast hér.

Search