skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Lilja Björk Einarsdóttir nýr bankastjóri Landsbankans

Lilja Björk Einarsdóttir nýr bankastjóri Landsbankans

 

Lilja Björk Einarsdóttir

Lilja Björk Einarsdóttir hóf störf sem bankastjóri Landsbankans hf. í gær. Lilja er véla- og iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk meistaraprófi í fjármálaverkfræði frá Michigan-háskóla í Ann Arbor í Bandaríkjunum árið 2003.

 

Á árunum 2008 til 2016 stýrði Lilja starfsemi, eignaumsýslu og endurheimt eigna gamla Landsbanka Íslands, LBI ehf., í London. Hún var sjálfstætt starfandi ráðgjafi og stjórnarmaður í fyrirtækjum frá 2016 þar til hún tók við starfi bankastjóra Landsbankans. Á árunum 2005 til 2008 var hún sérfræðingur og síðar framkvæmdastjóri hjá Landsbanka Íslands hf. í London og bar m.a. ábyrgð á daglegum rekstri og uppbyggingu stoðdeilda. Áður vann Lilja hjá ráðgjafarfyrirtækinu Marsh & McLennan frá 2003 til 2005 og vann m.a. verkefni fyrir Ford-bílaframleiðandann, sem sérfræðingur í gerð áætlana og áhættulíkana fyrir vátryggingarsvið og fjárstýringu.

Search