skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Launakönnun SSF – Happdrætti framlengt

Launakönnun SSF – Happdrætti framlengt

launakönnunSamtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) hefur hafið launakönnun á meðal félagsmanna SSF. Allir félagsmenn ættu að hafa fengið umslag vegna þessa, í umslaginu er  blað með vefslóð og lykilorði. Á engan hátt er hægt að rekja svör til viðkomandi félagsmanns eða fyrirtækis. Framkvæmd könnunarinnar er í höndum Gallup.

Lykilorðið að launakönnuninni gildir sem happdrættisnúmer og verða 20 vinningar dregnir út, hver að fjárhæð 80.000 kr. Búið er að framlengja frestinn til að svara og þar með vera þátttakendur í happdrættinu til og með 16. febrúar. Það er því mikilvægt að geyma blaðið með aðgangsorðinu vel.

Gott er að hafa síðasta launaseðil við hendina þegar svarað er. Mikilvægt er að félagsmenn leggi sitt af mörkum til að svörun verði sem allra best. Með því verða niðurstöður marktækari og gefur stjórn SSF gleggri mynd af kjörum og launaþróun félagsmanna undanfarinna ára en jafnframt munu niðurstöðurnar nýtast félagsmönnum betur sem viðmið um eigin laun. Niðurstöðurnar verða nýttar til grundvallar á launareiknivél SSF sem aðgengileg verður á heimasíðu SSF.

Stjórn SSF skorar á félegsmenn að taka þátt í könnuninni og að hvetja aðra félagsmenn á sínum vinnustað til að gera slíkt hið sama.

Search