skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Keilumót SSF 2017

Keilumót SSF 2017

 

SSF mótið í keilu fer fram dagana 15. og 17. maí næstkomandi í Keiluhöllinni í Egilshöll klukkan 18:00.  Mótið verður með sama sniði og undanfarin ár, þ.e. spilaðar verða fimm umferðir skv. MONRAD-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf.

Keppt verður í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki. Blönduð lið geta keppt í karlaflokki.

Fyrra keppniskvöldið verða leiknir þrír leikir og tveir leikir síðara kvöldið ásamt verðlaunaafhendingu og veitingum

Þátttökutilkynningum skal senda á netfang  [email protected]  fyrir kl. 12:00 föstudaginn 12. maí.

Í þátttökutilkynningu skal getið um hver verður í forsvari fyrir liðið/liðin og liðsskipan ( helst í röð leikmanna á braut )

NET-fang : [email protected]

NET-bréf subject : “SSF_keila_2017 – heiti liðs”. 

Munið að taka fram netfang og síma fyrirliða í þátttökutilkynningu til að auðvelda samskiptin við keppnisliðin.

Search