skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Hugvekja um nýsköpun í fjármálastarfsemi

Hugvekja um nýsköpun í fjármálastarfsemi

Fimmtudaginn 14. apríl stendur RB fyrir hugvekju um það hvernig fjármálastarfsemi er að breytast með tilliti til nýsköpunar.  Undanfarin ár hafa nýir aðilar, svokölluð Fintech nýsköpunarfyrirtæki, verið að ryðja sér rúms á fjármálamarkaði sem hingað til hefur verið stjórnað af hefðbundnum fjármálafyrirtækjum svo sem bönkum og tryggingarfélögum. Fintech fyrirtæki einblína oft á afmarkaðan hluta fjármálamarkaðarins og bjóða upp á sérhæfða starfssemi með gott og nútímalegt notendaviðmót, oftast í gegnum síma.

Í hugvekjunni verða ýmsar vangaveltur settar fram s.s. Hvernig mun fjármálastarfssemi þróast á næstu árum? Munu Fintech fyrirtækin halda áfram að næla sér í bita af kökunni og hvernig munu fjármálafyrirtæki bregðast við?

Aðalgeir Þorgrímsson, forstöðumaður Vörustýringar hjá RB.

Aðalgeir Þorgrímsson, forstöðumaður Vörustýringar hjá RB.

Hugvekjan verður í stjórn Aðalgeirs Þorgrímssonar forstöðumanns Vörustýringar hjá RB en hugvekjurnar verða í höndum þeirra Stefáns Þórs Helgasonar hjá KPMG, Gunnars Helga Gunnsteinssonar hjá Memento og Arnars Jónssonar hjá Memento. Stefán mun fjalla almennt um hvernig fjármálamarkaðurinn hefur verið að breytast og þeir félagar hjá Memento, Gunnar og Arnar, munu segja frá því af hverju nokkrir strákar út í bæ fóru að þróa greiðslulausn sem síðar skilaði sér í samstarfsverkefni við Íslandsbanka um þróun appsins Kass.

Fundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum RB í Höfðatorgi, Katrínartúni 2, á 4. hæð.  Fundurinn er opinn öllum og er aðgangur ókeypis.

 

Stefán Þór Helgason, ráðgjafi í nýsköpun hjá KMPG.

Stefán Þór Helgason, ráðgjafi í nýsköpun hjá KMPG.

Stefán Þór Helgason er ráðgjafi í nýsköpun hjá KMPG en hann hefur mikla reynslu úr nýsköpunargeiranum en áður starfaði hann hjá Klak Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetri.  Þar var hann meðal annars verkefnastjóri Gulleggins, Startup Energy Reykjavík, Startup Reykjavík, ClimateLaunchpad, Startup weekend Reykjavík og Snilldarlausna Marel.

Arnar Jónsson er CEO hjá Memento og einn af stofnendum fyrirtækisins en fyrirtækið er í samstarfi við Íslandsbanka um greiðsluappið Kass. Arnar hefur reynslu úr sjávarútvegi og

Arnar Jónsson, CEO hjá Memento.

Arnar Jónsson, CEO hjá Memento.

nýsköpunarheiminum en hann vann áður hjá Markó Partners og íslenska sjávarklasanum.  Gunnar Helgi Gunnsteinsson er COO hjá Memento og einn af unnið hjá Mannviti og Landsvirkjun.

Gunnar Helgi Gunnsteinsson, COO hjá Memento.

Gunnar Helgi Gunnsteinsson, COO hjá Memento.

 

Skilgreining á Fintech:

Fintech eða „Fjármálatækni“ er skilgreint sem atvinnugeiri sem samanstendur af fyrirtækjum sem nota tækni til að bjóða upp á fjármálaþjónustu á skilvirkari hátt en áður. Fyrirtækin eru oftast sprotafyrirtæki sem stofnuð eru í þeim tilgangi að breyta hefðbundinni fjármálastarfsemi eða hluta hennar.

Search