skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Gjöf til tækjakaupa

Gjöf til tækjakaupa

Í tilefni af 80 ára afmæli Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja árið 2015 ákvað stjórn þess að styrkja starfsemi Ljóssins með gjöf til tækjakaupa í endurhæfingar- og sjúkraþjálfunarsal Ljóssins.

Við afhendingu tækja í endurhæfingar- og sjúkraþjálfunarsal Ljóssins.

Við afhendingu tækja í endurhæfingar- og sjúkraþjálfunarsal Ljóssins.

Jafnframt var gerður samningur milli samtakanna og Ljóssins um viðhald og endurnýjun tækja til ársins 2020. Formleg afhending tækjanna var miðvikudaginn 1. júní sl. í nýjum líkamsræktar- og endurhæfingarsal Ljóssins.

Anna Karen Hauksdóttir, 1. varaformaður SSF, Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins og Friðbert Traustason, formaður SSF við formlega afhendingu tækja í líkamsræktar- og endurhæfingarsal Ljóssins.

Anna Karen Hauksdóttir, 1. varaformaður SSF, Erna Magnúsdóttir, forstöðumaður Ljóssins og Friðbert Traustason, formaður SSF.

Markmiðið með gjöfinni er að styðja grunnstarfsemi Ljóssins og gera endurhæfingu og sjúkraþjálfun aðgengilegri fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar.

Með þessu vildu Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja veita Ljósinu viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu mikilvægs starfs við endurhæfingu og stuðning við fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þeirra.

Search