skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]
Landsbankinn veitir umhverfisstyrki

Landsbankinn veitir umhverfisstyrki

  • 13. júlí, 2017

- Fréttatilkynning- Fimmtán verkefni hlutu umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans miðvikudaginn 5. júlí sl. Fimm verkefni fengu 500 þúsund krónur hvert og tíu verkefni 250 þúsund krónur hvert, samtals fimm milljónir króna. Þetta var í sjöunda sinn sem Landsbankinn veitir umhverfisstyrki úr Samfélagssjóði bankans en í ár bárust um 70 umsóknir. Umhverfisstyrkjum Landsbankans er ætlað að styðja við verkefni á sviði umhverfismála og náttúruverndar og dómnefnd leitast við að velja metnaðarfull…

Lesa meira
Sumarlokun skrifstofu SSF

Sumarlokun skrifstofu SSF

  • 5. júlí, 2017

Skrifstofa SSF verður lokuð frá 17. júlí til 4. ágúst vegna sumarleyfa starfsfólks SSF. Hægt er að senda tölvupóst á [email protected], öllum tölvupósti verður svarað. Ef erindið er brýnt er hægt að hringja í síma 7836100 þann tíma sem skrifstofan er lokuð. Umsóknir um styrki í Styrktar- og Menntunarsjóð SSF þarf að senda inn fyrir 15. júlí svo að öruggt sé að þær verði afgreiddar fyrir sumarleyfi, fyrsta afgreiðsla styrkja…

Lesa meira

Aukið framlag í lífeyrissjóð

  • 4. júlí, 2017

Þessa dagana heyrist rætt um auknar greiðslur atvinnurekenda í lífeyrissjóði vegna starfsmanna sinna og eðlilega er spurt hvort þetta gildi líka um okkur félagsmenn í SSF. Svarið er nei. Þessar breytingar eiga eingöngu við um félagsmenn ASÍ sem starfa undir samningum við SA. Núna 1. júlí kom til framkvæmda næst síðasta hækkunin á framlagi atvinnurekenda samkvæmt kjarasamningi og Salek-samkomulaginu. Ætlunin með þessu var að jafna lífeyriskjör á almenna vinnumarkaðnum (ASÍ)…

Lesa meira
RB auglýsir eftir styrktarverkefnum

RB auglýsir eftir styrktarverkefnum

  • 30. júní, 2017

RB auglýsir eftir góðgerðarmálum sem starfsfólk getur veitt lið á á heimasíðunni sinni, www.rb.is. HJá RB gefst starfsfólki kostur á að  leggja sitt af mörkum til góðgerðarmála og geta varið einum vinnudegi á ári í þágu góðs málefnis. Starfsfólk velur sér sjálft málefnið sem það vill veita lið en um er að ræða sjálfboðaliðastörf fyrir góðgerðarfélög, mannúðarsamtök, björgunarsveitir og ýmis önnur góð málefni

Lesa meira
Sparisjóður Suður Þingeyinga veitir samfélagsstuðning

Sparisjóður Suður Þingeyinga veitir samfélagsstuðning

  • 30. júní, 2017

Fréttatilkynning Aðalfundur Sparisjóðs Suður-Þingeyinga var haldinn á Húsavík 2. maí sl. þar kom fram að rekstur sparisjóðsins gekk vel á síðasta ári. Hagnaður fyrir skatta var 83 mkr. skattar tæpar 13 mkr og hagnaður eftir skatta rúmar 70 mkr. Útlán jukust um 250 mkr. á síðasta ári sem er rúmlega 6% aukning frá fyrra ári. Heildareignir Sparisjóðs Suður-Þingeyinga voru í árslok 2016 um 7 milljarðar kr. og bókfært eigið fé…

Lesa meira

Vel heppnað NFU þing

  • 22. júní, 2017

Þing NFU samtakanna (Nordic financial unions) lauk í gær, miðvikudaginn 21. Júní, en þingið var haldið í Reykjavík dagana 20. og 21. júní. Um 100 félagsmenn aðildarfélaga NFU auk fyrirlesara og gesta mættu á þingið. Að NFU standa samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Íslandi og Finnlandi. Á þinginu var m.a. fjallað um áhrif ESB löggjafar á norrænu félögin s.s. kjarasamninga, réttindi félagsmanna, viðskiptavernd og fleira. Benedikt Jóhannesson, fjármálaráðherra,…

Lesa meira
Ný heimasíða NFU

Ný heimasíða NFU

  • 20. júní, 2017

NFU (norrænu samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja) opnaði í dag nýja og notendavænni heimasíðu. Heimasíðan var sett í loftið á ráðstefnu NFU sem haldin er að þessu sinni í Reykjavík dagana 20. og 21. júní. https://nordicfinancialunions.org/

Lesa meira
Skrifstofa SSF lokuð 20. og 21. júní

Skrifstofa SSF lokuð 20. og 21. júní

  • 20. júní, 2017

Skrifstofa SSF verður lokuð í dag, þriðjudaginn 20. júní og á morgun 21. júní vegna ráðstefnu á vegum Norrænu samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja sem fer fram í Reykjavík þessa daga.  

Lesa meira
Samfélagssjóður Valitor veitir 9 styrki

Samfélagssjóður Valitor veitir 9 styrki

  • 7. júní, 2017

Samfélagssjóður Valitor veitti 9 styrki  að heildarupphæð kr. 8.000.000 í maí, en hlutverk sjóðsins er að styðja við vandlega valin málefni, sem bæta mannlíf og efla. Að þessu sinni hlutu eftirtalin verkefni og aðilar styrk úr sjóðnum: Ásta Kristín Pjetursdóttir til að stunda bakkalárnám í víóluleik við Konunglega danska konservatoríið. Ásta Rún Valgerðardóttir vegna barnabókarinnar ,, Fjölskyldudagur í leikskólanum”  sem fjallar um að allar fjölskyldur eru einstakar á sinn hátt.…

Lesa meira
Vorráðstefna RB

Vorráðstefna RB

  • 31. maí, 2017

Miðvikudaginn 10. maí fór fram Vorráðstefna RB undir heitinu "The Digitalization of the Financial Sector". Ráðstefnan var mjög vel sótt og margt mjög áhugavert kom fram um  hvernig viðskiptamódel banka hafa verið að þróast og munu þróast á næstunni. Stemningin Hér má sjá fyrlestrana sem fluttir voru á ráðstefnunni. Fyrirlestrar

Lesa meira
Search