skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

FJÖLMENNT Á KEILUMÓTI SSF

FJÖLMENNT Á KEILUMÓTI SSF

Árlegt keilumót SSF fór fram í Egilshöll dagana 23. og 14. maí sl. Mótið nýtur vaxandi vinsælda ár frá ári en keppt er í 4ra manna liðum í karla- og kvennaflokki en einnig geta blönduð lið keppt saman í karlaflokki.

Sigurvegarar í karlaflokki, lið Landsbankans. Frá vinstri: Guðmundur Óskar Hauksson, Hannes Jón Hannesson, Kári Agnarsson og Ragnar Ólafsson. Á myndina vantar Ólaf Kolbeinsson.

 

Spilaðar eru fimm umferðir skv. monrad-kerfi þar sem mismunur á skori liðanna ræður stigagjöf. Í einstaklingskeppni kvenna var Sigríður Klemensdóttir, starfsmaður Sjóvá, hlutskörpust en hún var með flestar fellur og hæsta leik, alls 20 fellur og 238 stig í hæsta leik. Í karlaflokki fékk Hannes Jón Hannesson, starfsmaður landsbankans, verðlaun fyrir hæsta leik, 206 stig, en Jón Sveinsson, starfsmaður RB, fékk verðlaun fyrir flestar fellur, alls 18 talsins. Í liðakeppninni vann kvennalið Sjóvár og karlalið Landsbankans í karlaflokki.

 

Sigurliðið í kvennaflokki, lið Sjóvá.

Bronslið í karlaflokki, lið RB. Frá vinstri: Þórir Haraldsson, Jón Sveinsson, Tómas Jóhannsson, Sigfús Þór Guðbjartsson. Á myndina vantar Sigurð Guðmundsson

 

Kvennalið Landsbankans sem hafnaði í öðru sæti. Frá vinstri: Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir, Sigríður Ragna Jóhannsdóttir, Guðný S. Magnúsdóttir, Sigrún G. Guðmundsdóttir og Bára Ágústsdóttir. Á myndina vantar Kristólínu Ólafsdóttur.

Jón Sveinsson, RB, fékk verðlaun fyrir flestar fellur í karlaflokki.

Fyrsta sæti kvenna, lið Sjóvár.

Hannes Jón Hannesson, Landsbanka, fékk verðlaun fyrir hæsta leik í karlaflokki.

Sigríður Klemensdóttir, starfsmaður Sjóvá, fékk verðlaun fyrir hæsta leik og flestar fellur í kvennaflokki.

Search