skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

DESEMBERUPPBÓT 2022

DESEMBERUPPBÓT 2022

Desemberuppbót miðað við fullt starf árið 2022 er kr. 98.000,- og skal greiða hana eigi síðar en 15. desember. Allir félagsmenn á fyrirframgreiddum launum fá desemberuppbótina greidda með launum 1. desember 2022.  Fullt ársstarf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof sbr. grein 1.6.1 í kjarasamningi.

Uppbótin greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember.

Search