skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Breytingar á þjónustu á Seyðisfirði

Breytingar á þjónustu á Seyðisfirði

Fréttatilkynning Landsbankans:

Um áramótin verður afgreiðsla Landsbankans á Seyðisfirði færð í annað húsnæði og um leið verða gerðar breytingar á starfseminni og á afgreiðslutíma. Viðræður hafa staðið yfir við sýslumanninn á Austurlandi um að afgreiðsla Landsbankans opni í húsakynnum sýslumanns að Bjólfsgötu 7 á Seyðisfirði og er allt útlit fyrir að samningar takist.

Miklar breytingar hafa orðið á rekstrarumhverfi banka á undanförnum árum. Yfir 80% allra bankaviðskipta eru nú rafræn og þetta hlutfall fer hækkandi. Þörf fyrir hefðbundin útibú og afgreiðslur hefur því minnkað. Þá eru gerðar ríkar kröfur um aukna hagkvæmni í rekstri Landsbankans. Breytingarnar á Seyðisfirði eru liður í að bregðast við þessu.

Afgreiðsla Landsbankans að Bjólfsgötu 7 verður opin frá klukkan 12.00 til 15.00, alla virka daga. Einn starfsmaður mun vinna í afgreiðslunni, í stað þriggja nú. Búið er að kynna þessar breytingar fyrir starfsfólki bankans á Seyðisfirði.

Hraðbankinn í afgreiðslu Landsbankans á Seyðisfirði verður fluttur á nýjan stað og verður hann sem fyrr aðgengilegur allan sólarhringinn.

Eftir breytingarnar verður afgreiðsla Landsbankans á Seyðisfirði með svipuðu sniði og í Bolungarvík, en þar tekur Landsbankinn þátt í rekstri þjónustumiðstöðvar í Ráðhúsi Bolungarvíkur ásamt sýslumanninum á Vestfjörðum og Póstinum.

Póstþjónusta er nú veitt í afgreiðslu Landsbankans á Seyðisfirði en það fyrirkomulag mun breytast. Pósturinn er í viðræðum við aðra mögulega samstarfsaðila og mun tilkynna breytingar á þjónustu sinni síðar.

Landsbankinn rekur eftir sem áður langvíðfeðmasta útibúanetið á landinu en alls eru útbú og afgreiðslur bankans 39 talsins. Um 60% af starfsmönnum útibúa starfa utan höfuðborgarsvæðsins, miðað við stöðugildi.

Search