skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

Breytingar á kjarasamningi 1. apríl

Breytingar á kjarasamningi 1. apríl

Þann 1.4.2020 verða ýmsar breytingar á kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtaka atvinnulífsins (SA).

Launahækkanir 1.4.2020:

Öll mánaðarlaun kr. 522.000 (lflk 171) og lægri hækka um kr. 24.000/mán.

Öll mánaðarlaun hærri en kr. 522.000 hækka um kr. 18.000/mán.

Kjaratengdir liðir hækka um 2,5% á sömu dagsetningum nema um annað hafi verið samið.

Orlofsuppbót 1.5.2020 verður kr. 51.000.

Launatafla:

Launaflokkar 172 til 203 verða felldir niður og efsti launaflokkur eftir breytingu verður lflk 171.

Athugið vel grein 13.3.2 sem segir: „Enginn starfsmaður skal lækka í launaflokki eða öðrum kjörum frá því sem nú er samkvæmt samningi þessum eða sérsamningum. Hafi starfsmaður betri kjör en í samningi þessum greinir skulu þau haldast“.

Yfirvinnukaup, kafli 1.3:

Grein 1.3.1 var: „…Tímakaup fyrir yfirvinnu í hverjum launaflokki er 1,0385% af mánaðarlaunum miðað við þann launaflokk sem viðkomandi starfsmaður tekur laun eftir“.

Grein 1.3.1 verður: „…Tímakaup fyrir yfirvinnu er 1,0385% af mánaðarlaunum fyrir dagvinnu

Grein 1.3.2 um yfirvinnukaup á skilgreindum stórhátíðum, 1,375%, tekur sömu breytingum varðandi mánaðarlaun.

Félagsgjald til SSF:

Hámark félagsgjalda til SSF er nú (mars 2020) 0,7% af launaflokki 203 (17% álag), eða 0,7% af kr. 694.568 = kr. 4.862.

Frá og með 1.4.2020 verður félagsgjald til SSF áfram 0,7% af mánaðarlaunum,  en að hámarki krónur 4.600/mán.

Fæðingarstyrkur: Fæðingarstyrkur hækkar um 2,5%, úr kr. 79.981 í kr. 81.980.

Search