skip to Main Content
Skrifstofa SSF - Nethyl 2E - 110 Reykjavík - 540 6100 - [email protected]

BANKARNIR HAFNA SANNGJÖRNUM KJARASAMNINGI FYRIR STARFSMENN

BANKARNIR HAFNA SANNGJÖRNUM KJARASAMNINGI FYRIR STARFSMENN

Samninganefnd SSF hefur nú eytt mörgum tilgangslausum dögum í samningaviðræður við bankana. Það sem eftir stendur er tilboð um 6,75% launahækkun með 66 þús. kr. þaki og hækkun fyrir tvö starfsheiti um 7,2%. Meira hafa bankarnir ekki hugsað sér að gera fyrir starfsmenn sína. Eigum við það skilið?

6,75% launahækkun með þaki felur í sér 5,7-5,8% kostnaðarauka fyrir bankana þar sem tæplega helmingur starfsmanna fær skerta launahækkun og bankarnir þannig í raun að taka af þeim samningsrétt. Við vitum að kostnaðarmat við þá samninga sem gerðir voru á undan var um og yfir 8%. Sum okkar heyrðu forstjóra Haga kvarta yfir íþyngjandi 10-12% launahækkunum á uppgjörsfundi í vikunni. Forsvarsmenn veitingageirans tala um yfir 10% launahækkanir. Hver eru rökin fyrir því að bankarnir sleppi með undir 6%, varla eru þeir á vonarvöl eftir góðan hagnað undanfarin ár.
Við höfum reynt mikið til þess að afnema þetta 66 þús. kr. þak en án árangurs. Þetta þak beinist augljóslega nær einungis að starfsmönnum fyrirtækja á fjármálamarkaði. Á sá hópur það skilið?

Við höfum ítrekað reynt að ná fram lágmarkshækkun fyrir lægstu hópana í okkar launakerfum. 6,75% hækkun á laun nýliða þýða rúmar 28 þús. kr. á mánuði sem eru rúmlega 40% af hámarkshækkuninni upp á 66 þús. kr. Bankarnir treysta sér ekki til þess að hækka lægstu launin meira þó að það hafi verið gert í öðrum samningum. Við reyndum fyrst að ná fram 42 þús. kr. lágmarkshækkun sem var hafnað. Þá lögðum við til 40 þús. kr. hækkun á þau 5 starfsheiti sem við vorum með lágmarkslaunaflokka fyrir og töldum kostnað við það vera 0,2-0,3%. Boð bankanna var upp á 7,2% hækkun fyrir tvo flokka, ekki þann lægsta. Bankarnir vilja ekki gera betur. Eigum við það skilið?

Við lögðum til að vikulegur vinnutími styttist um 20 mínútur (í viðbót við þær 45 mín. sem nú gilda), sem að okkar mati samsvaraði 0,9% hækkun launakostnaðar. Því var alfarið hafnað af bönkunum. Eigum við það skilið?
Þegar allt var talið vorum við að tala um kostnað við framlengingu samnings upp á rúm 7% sem er mun lægra en kostnaður við aðra samninga. Bankarnir höfnuðu því alfarið.
Við vorum upphaflega með fleiri kröfur í farteskinu, t.d. hækkun lífeyrissjóðsiðgjalds til samtryggingar um 2% sem líka var hafnað, en kröfum okkar fækkaði auðvitað þegar ljóst var að gerður yrði skammtímasamningur.

Við reiknum með að næsti fundur verði nk. þriðjudag, 24. janúar. Fyrir þann fund mun stjórn SSF funda með formönnum aðildarfélaga SSF.
Við höfum hins vegar komist rækilega að því hvar hugur bankanna og annarra viðsemjenda SSF liggur varðandi kjarabætur fyrir starfsmenn sína og að ekki er mögulegt að ná árangri með rökum eða fortölum.

Við teljum að við eigum þetta ekki skilið.

F.h. samninganefndar SSF, Ari Skúlason, formaður.

Search