Unga kynslóðin
SSF hefur lagt áherslu sl. ár að fylgjast með málefnum unga fólksins um víða veröld. Nú þegar heimurinn fer sífellt smækkandi verðum við að láta okkur þessi málefni varða. 500 milljón ungs fólks mun koma á vinnumarkaðinn á komandi áratug. Meðan hröð alþjóðavæðing og tækniframfarir bjóða upp á ný tækifæri fyrir uppbyggjandi vinnu og tekjur fyrir útvalda hópa geta þessar tískubylgjur gert fólk viðkvæmara þegar það er að þroskast. Um heim allan geta milljónir ungs fólks ekki farið á vinnumarkaðinn og útilokun ungra kvenna er sérstaklega slæm. Meirihluti starfa fyrir ungt fólk er með litlum fríðindum og illa launuð.
- Einn af fimm í heiminum er á bilinu 15-24 ára. 85% af þeim lifa í þróunarlöndunum.
- Sextíu og sex milljónir ungs fólks er atvinnulaust og mun fleiri eru í störfum sem hæfa þeim ekki.
- Á komandi áratug mun allt að 500 millijón ungs fólks koma á vinnumarkaðinn
- Hlutfall atvinnuleysis ungs fólks er tvöfalt til þrefalt meiri en hjá þeim sem eldri eru.
- Í Suður Afríku hækkaði hlutfall atvinnulauss ungs fólks úr 45% og upp í 56% milli 1995 og 2000.
- Í 25% iðnríkjanna eru 20% fleiri konur atvinnulausar en karlar.
SSF er aðili að tvennum erlendum samtökum, annað er samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja á Norðurlöndunum, NFU (www.nfufinance.org), og síðan aðili að alheimssamtökunum UNI (www.union-network.org). Innan þessara samtaka eru hópur sem sér um málefni unga fólksins. Til þess að vera gjaldgengur í þennan hóp má aðili ekki vera eldri en 35 ára.
NFU-youth
NFU er samtök starfsmanna í norrænum fjármálafyrirtækjum. Innan samtakanna er starfshópur yngri kynslóðarinnar sem heldur ráðstefnu og ræðir málefni þeirra árlega.
Frá fundi NFU youth júní 2006
Frá fundi NFU-youth júní 2005
Frá fundi NFU-youth júní 2004
UNI-youth
Aðalmarkmið UNI-youth er að sameina ungt fólk um allan heim og tileinka sér svipuð málefni. UNI-youth setur sér skýr markmið og tekur á þeim innan ramma stéttarfélaganna.
Ungir félagsmenn eru lífæð stéttarfélaganna, þeir eru leiðtogar framtíðarinnar. Stéttarfélög þurfa þess vegna að leggja áherslu á að fá nýja félaga inn í félögin og hafa þá með í ákvarðanatöku. Það þarf að koma samskiptum og kerfisbundnum skiptingum til að gera félögin eftirsóknaverðri og auka áhuga ungs fólks til þess að taka þátt.
UNI-youth skiptist niður í UNI-Europa, UNI-Africa, UNI-Americas og UNI-Apro.
UM UNI-Europa-youth
Innan UNI-Europa youth eru félagsmenn upp að 35 ára aldri í 350 stéttarfélögum víðsvegar um Evrópu. Að byrja í fyrsta skipti í fullri vinnu, að vinna með skóla eða að finna jafnvægi milli vinnu og einkalífs, þetta eru hindranir sem að bíða ungs fólks þegar það er að hefja starfsferilinn. Aðalhlutverk UNI-Europa Youth er að hjálpa ungu fólki að takast á við þessi vandamál.
Mikilvægt er að fá ungt fólk inn í stéttarfélögin, að sjá þarfir þeirra og bjóða þeim þá þjónustu sem þau þurfa á að halda. Fleiri mál sem UNI-Europa Youth tekur á eru útskúfun ungs fólks, atvinnuleysi ungs fólks, áhrif alþjóðavæðingar og samstarf með öðrum svæðum heimsins.
UNI-greinar
Frá fundi UNI-youth í október 2005.
Frá fundi UNI-youth í ágúst 2005.
Frá fundi UNI-youth í október 2004
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



