Fyrir launagreiðendur
Aðild að SSF hefur í för með sér að fyrirtækið samþykkir að greiða laun og önnur kjör ekki lakari en samkvæmt kjarasamningum SSF. Sjá einnig kjarasamning undir kjaravefFélagsgjaldanúmer SSF er 542.
Félagsgjald: Fyrirtækið dregur mánaðarlega af launum félagsmanna 0,7% af föstum launum og greiðir til SSF sem félagsgjald. Félagsgjald er þó aldrei reiknað af hærri launum en sem nemur hæsta launaflokki í launatöflu SSF (þetta gildir frá og með 1. maí 2012).Greiðist inn á reikning: Kt. 550269-7679, 0101-26-767. Einnig sendir fyrirtæki mánaðarlega skilagrein þar um til SSF.
Styrktarsjóður SSF: Fyrirtækið greiðir sem nemur 0,5% af launum starfsmanns í Styrktarsjóð SSF.Greiðsla er þó aldrei reiknuð af hærri launum en sem nemur hæsta launaflokki í launatöflu SSF (þetta gildir frá og með 1. maí 2012). Reikningur: Kt. 470798-3199, 0111-26-770, og sendir skilagrein þar um til SSF.
Menntunarsjóður SSF: Fyrirtækið greiðir sem nemur 0,2% af launum starfsmanns í Menntunarsjóð SSF. Greiðsla er þó aldrei reiknuð af hærri launum en sem nemur hæsta launaflokki í launatöflu SSF(þetta gildir frá og með 1. maí 2012). Reikningur kt. 451101-2690, 0113-26-1861, og sendir skilagrein þar um til SSF.
Greiðslur í lífeyrissjóði: Auk umsaminnar greiðslu 6% í sameignarlífeyrissjóð greiðir fyrirtækið fyrstu þrjú starfsárin sérstakt 2% framlag ofan á laun starfsmanns í séreignarlífeyrissjóð sem starfsmaðurinn sjálfur ákveður (sjá grein 12.6.2. í kjarasamningi). Eftir þriggja ára starf skv. kjarasamningum SSF hækkar þessi greiðsla úr 2% í 7%.
Orlofsheimilasjóður: 0% Fyrirkomulag orlofsheimila fyrir félagsmenn SSF er með þeim hætti að þau mál eru leyst af starfsmannafélagi innan hvers fyrirtækis og þar með er ekki greitt í sameiginlegan orlofssjóð hjá stéttarfélaginu.
Endurhæfingarsjóður: 0,13% sem greiðast beint til Virk starfsendurhæfingarsjóðs , en flestir lífeyrissjóðir innheimta þetta gjald fyrir sjóðinn.
Skilagreinar: Allar skilagreinar til SSF skal senda á felagaskra@ssf.is eða í pósti til SSF, Nethyl 2E, 110 Reykjavík.
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



