Um SSF
SSF - í fararbroddi frá 1935!
Samtökin voru stofnuð 30. janúar 1935. Megináhersla samtakanna hefur frá upphafi verið á kjör og starfsumhverfi félagsmanna og hefur SSF verið í framvarðarsveit íslenskra stéttarfélaga við að ná fram ýmsum réttindum fyrir félagsmenn sína. Þótt margt hafi áunnist í kjaramálum félagsmanna eru enn fjölmörg viðfangsefni framundan.
Stöndum saman, höldum áfram á sömu braut og tökum virkan þátt í að móta framtíð okkar.
Starf SSF heldur áfram!
Með félagskveðju,
Stjórn SSF
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja - skammstafað SSF,
Var upphaflega nefnt SÍB -samband íslenskra bankamanna en nafninu breytt 2007 í SSF - samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja. Félagið var stofnað 30. janúar 1935 og er stéttarfélag starfsmanna í bönkum, sparisjóðum og fjármálafyrirtækjum.
Á vinnustöðum þar sem ekki er starfandi starfsmannafélag geta starfsmenn sótt um beina aðild að SSF.
Opnunartími skrifstofu SSF
Skrifstofan er opin frá kl. 09.00 - 12.00 og frá 13.00 - 16.00 alla virka daga
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



