Beint á leiðarkerfi vefsins

Trúnaðarmenn SSF

Á hverjum vinnustað, þar sem starfandi eru a.m.k. 5 félagsmenn, er starfsmönnum heimilt að velja sér trúnaðarmenn sem eru ábyrgir gagnvart SSF og eru tengiliðir sambandsins við aðildarfélögin. Kosið er til tveggja ára í senn. 

Trúnaðarmaður gætir þess, að kjarasamningar séu haldnir og réttur starfsmanna sé í hvívetna virtur, einkum orlof, vinnuvernd, öryggi og hollustuhættir. Hann gerir sitt besta til að skapa og viðhalda góðri samvinnu innan stofnunar og leitast við að leysa hugsanleg ágreiningsefni.

 


Toppmynd