Lausar stöður
Lausar stöður !!!
Lausar stöður eru birtar hér á vefnum þannig að síðustu auglýsingar birtast fyrst en þær eldri verða síðan til fram yfir lok umsóknarfrests. (þeir sem vilja setja inn auglýsingu hér sendi á netfang: sigurdur@ssf.is Þeim sem eru í leit að lausum störfum er jafnframt bent á að heimasíður allra fjármálafyrirtækja eru með undirsíður þar sem sjá má laus störf og svæði fyrir atvinnuumsóknir.
Þýðandi , tímabundið starf
Landsbankinn auglýsir eftir þýðanda og prófarkalesara til tímabundinna afleysinga.
Ráðningartími er 10 mánuðir frá og með apríl/maí 2012 og starfsstöð er í höfuðstöðvum bankans í Austurstræti, eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni:
Þýðingar úr íslensku á ensku og úr ensku á íslensku
Verkefnastjórnun á þýðingum á og úr öðrum tungumálum
Samskipti við þýðendur utan bankans eftir þörfum
Viðhald á orðasafni bankans
Prófarkalestur
Hæfniskröfur og eiginleikar:
Að lágmarki BA próf í ensku og góð íslenskukunnátta
Reynsla af þýðingum
Þekking á SDL Trados og MultiTerm er æskileg
Reynsla af vinnu við fjármála- eða viðskiptatexta er skilyrði
Góð hæfni til mannlegra samskipta
Nánari upplýsingar veita Agnes Marta Vogler, þýðandi, í síma 410 4024 og Bergþóra Sigurðardóttir hjá Mannauði í síma 410 7907. Umsókn merkt "Þýðandi - tímabundið starf" fyllist út á vef bankans. Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar nk.
Sérfræðingur á fjármálasviði - VALITOR
Valitor er framsækið alþjóðlegt fyrirtæki sem býður fyrirtækjum þjónustu á sviði rafrænna greiðslulausna.
Sérfræðingur á fjármálasviði
Starfssvið:
Greining á rekstri fyrirtækisins og framsetning fyrir stjórnendur
Forsjáraðili fyrir upplýsingakerfi, þróun og verkstýring
Skýrslugerð fyrir eftirlitsaðila og kortasamsteypur
Eftirlit og greining á reikningum kortasamsteypa
Áætlanagerð í samráði við fjármálastjóra og aðra sviðs- og framkvæmdastjóra félagsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun í viðskiptafræði, rekstrarfræði, rekstrarhagfræði eða öðru sem nýtist í starfi
A.m.k. 3 ára reynsla á fjármálamarkaði
Þekking á Business Objects er kostur
Nákvæm og öguð vinnubrögð
Jákvætt hugarfar og hæfni í mannlegum samskiptum
Mjög gott vald á íslensku og ensku
Nánari upplýsingar:
Kristín Guðmundsdóttir, kristin@hagvangur.is Umsóknarfrestur: Til og með 19.2.2012
Flýtileiðir
Leit
Toppmynd



